Ferill 671. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1536  —  671. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Eyjólfi Ármannssyni um gæsluvarðhald og fangelsisvistun útlendinga.


     1.      Hversu oft kröfðust stjórnvöld gæsluvarðhalds yfir útlendingum og hversu lengi í senn á grundvelli 115. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, ár hvert 2016–2022?
    Í töflu 1 er annars vegar tilgreindur fjöldi þeirra einstaklinga sem úrskurðaðir voru í gæsluvarðhald og hins vegar lengd gæsluvarðhalds, sundurliðað eftir árum (miðað er við það ár þegar gæsluvarðhald hófst). Lög nr. 80/2016, um útlendinga, tóku gildi 16. júní árið 2016 og miðast upplýsingarnar við þá dagsetningu fram til ársloka 2022. Hafa ber í huga að oft byggist krafa um gæsluvarðhald á fleiri en einu broti en hér eru tilgreind öll tilvik þar sem vísað er til 115. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, óháð því hvort brot gegn öðrum lagaákvæðum voru einnig lögð til grundvallar. Það getur haft áhrif á lengd gæsluvarðhalds hvort um önnur brot var einnig að ræða.
    Á tímabilinu höfnuðu dómstólar einu sinni kröfu lögreglu um gæsluvarðhald á grundvelli 115. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016. Krafist var 14 daga gæsluvarðhalds og var krafan lögð fram árið 2020.

     Tafla 1: Fjöldi útlendinga sem sættu gæsluvarðhaldi á grundvelli 115. gr. laga um útlendinga, sundurliðað eftir árum og fjölda daga sem viðkomandi sættu gæsluvarðhaldi.

Fjöldi daga í gæsluvarðhaldi

Ár
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 13 14 18 20 Alls
2016 0
2017 0
2018 2 1 3
2019 1 1 1 1 4
2020 1 1 1 1 4
2021 2 1 1 1 2 7
2022 1 2 1 1 1 2 1 1 1 1 1 13
Alls 2 4 3 2 1 1 2 4 3 2 1 1 3 1 1 31

     2.      Hversu margir útlendingar voru vistaðir í fangelsinu á Hólmsheiði og hversu lengi í senn vegna þess að flytja átti þá úr landi, svo sem á grundvelli d- eða g-liðar 1. mgr. 115. gr. laga um útlendinga, ár hvert 2016–2022?
    Allir þeir einstaklingar sem tilgreindir eru í töflu 1, að einum frátöldum árið 2018, dvöldust á Hólmsheiði. Tafla 2 sýnir þá sem voru vistaðir á Hólmsheiði við lok gæsluvarðhalds á grundvelli d- og g-liðar 115. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016. Í sumum tilvikum var grundvöllur gæsluvarðhalds einnig brot á öðrum lagaákvæðum.

     Tafla 2: Fjöldi útlendinga sem sættu gæsluvarðhaldi á Hólmsheiði, m.a. á grundvelli d- og g-liðar 1. mgr. 115. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, sundurliðað eftir árum og fjölda daga sem viðkomandi sættu gæsluvarðhaldi.

Fjöldi daga í gæsluvarðhaldi

Ár 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 14 18 Alls
2018 2 2
2019 1 1 1 3
2020 1 1 1 3
2021 2 1 1 1 5
2022 1 2 1 1 2 1 1 1 10
Alls 2 4 3 1 1 1 2 3 3 1 1 1 1 23