Ferill 841. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Prentað upp.

Þingskjal 1540  —  841. mál.
Leiðréttur texti.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Bergþóri Ólasyni um hlutdeildarlán.

     1.      Hversu margar íbúðir hafa verið seldar með hlutdeildarláni frá því að það varð heimilt, sundurliðað eftir árum og landshlutum?
    Tilgangur hlutdeildarlána er að brúa eiginfjárkröfu við íbúðarkaup fyrir þá sem þess þurfa. Lánað er til kaupa á nýjum íbúðum sem hafa verið samþykktar af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sem hagkvæmar íbúðir. Einnig er heimilt að veita hlutdeildarlán til kaupa á hagkvæmum eldri íbúðum utan höfuðborgarsvæðisins í húsnæði sem hlotið hefur gagngerar endurbætur. Með hagkvæmum íbúðum er átt við íbúðir sem uppfylla stærðar- og verðmörk. Heimilt er að lána til einstaklinga sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð og þeirra sem ekki hafa átt íbúðarhúsnæði sl. fimm ár og eru undir tilteknum tekjumörkum. Heimilt er að lána allt að 30% hlutdeildarlán.
    Alls hafa 473 íbúðir verið seldar með hlutdeildarlánum frá því að byrjað var að veita hlutdeildarlán. Taflan sýnir hvernig íbúðirnar skiptast eftir póstnúmerum og árum.

Póstnúmer 2020 2021 2022 2023 Samtals
101 3 3
103 1 1
104 5 5
105 4 1 5
108 2 33 35
110 6 6
112 23 56 79
113 3 3 1 7
190 1 1 2
200 8 3 11
210 9 9
221 10 6 16
230 9 9
240 1 1
245 4 4
250 7 7
260 33 41 3 77
262 1 22 2 4 29
270 18 18
300 13 15 10 38
340 1 1
400 2 2
415 1 1
540 2 2
600 45 8 1 54
604 2 2
620 2 2
800 16 11 27
810 10 10
815 2 3 5
850 2 2
860 2 2
880 1 1
Samtals 4 297 152 20 473

     2.      Hversu margar íbúðir hafa verið til sölu með möguleika á hlutdeildarláni frá því að það varð heimilt, sundurliðað eftir árum og landshlutum?
    Ferlið er þannig að byggingaraðilar sækja um forsamþykki til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) á því að íbúðir uppfylli skilyrði til þess að fá hlutdeildarlán. Yfirleitt er sótt um slíkt samþykki áður en íbúðir eru byggðar eða meðan þær eru í byggingu. Í því felst hins vegar ekki skuldbinding um að selja þurfi íbúðirnar með hlutdeildarlánum og í einhverjum tilvikum gæti byggingaraðili ákveðið að falla frá því að selja íbúðir með hlutdeildarlánum án þess að hann þurfi að tilkynna það sérstaklega til HMS.
    Hér er að finna lista yfir samþykkt byggingaráform eftir sveitarfélögum frá upphafi en ekki liggja fyrir upplýsingar um hversu margar af þeim íbúðum hafa verið byggðar, hvenær þær voru auglýstar til sölu eða hversu margar þeirra uppfylltu að endingu skilyrði um hlutdeildarlán eða voru auglýstar með möguleika á hlutdeildarláni.

Sveitarfélag Fjöldi
Akranes 96
Akureyri 165
Árborg 94
Bíldudalur 8
Blönduós 5
Bolungarvík 11
Búðardalur 2
Dalvík 12
Djúpavogur 5
Egilsstaðir 2
Eskifjörður 6
Eyrarbakki 2
Fáskrúðsfjörður 5
Garðabær 12
Grindavík 1
Hafnarfjörður 76
Hella 5
Hvammstangi 1
Hveragerði 56
Hvolsvöllur 2
Höfn í Hornafirði 2
Ísafjörður 8
Kirkjubæjarklaustur 6
Kópavogur 50
Mosfellsbær 69
Reyðarfjörður 7
Reykjanesbær 352
Reykjavík 293
Sandgerði 8
Sauðárkrókur 19
Selfoss 95
Skaftárhreppur 1
Stykkishólmur 1
Suðurnesjabær 20
Súðavík 2
Vík 1
Vogar 57
Vopnafjörður 2
Þorlákshöfn 35
Samtals 1.594