Ferill 608. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1545 — 608. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Gísla Rafni Ólafssyni um verklag lögreglu við tilkynningar um niðurfellingu rannsóknar.
1. Hvernig er staðið að tilkynningum um niðurfellingu rannsóknar á tilkynntum brotum?
Lögregla getur hætt rannsókn á grundvelli 4. mgr. 52. gr. laga um meðferð sakamála, nr. 88/2008, ef ekki þykir grundvöllur til að halda henni áfram, svo sem ef í ljós kemur að kæra hefur ekki verið á rökum reist eða brot er smávægilegt og fyrirsjáanlegt er að rannsókn muni hafa í för með sér óeðlilega mikla fyrirhöfn og kostnað. Ákveði lögregla að hætta rannsókn máls ber henni að tilkynna kæranda það, hafi hann hagsmuna að gæta. Jafnframt skal benda honum á að hann geti kært ákvörðunina til ríkissaksóknara, sbr. 5. mgr. 52. gr. laga um meðferð sakamála. Þá getur ákærandi að lokinni rannsókn sakamáls fellt málið niður á grundvelli 145. gr. laga um meðferð sakamála telji hann það sem fram er komið ekki nægilegt eða líklegt til sakfellis. Felli ákærandi mál niður ber að tilkynna það þeim sem hagsmuna hafa að gæta og er hægt að óska eftir rökstuðningi fyrir þeirri ákvörðun, sbr. 1. mgr. 147. gr. laga um meðferð sakamála.
Hægt er að tilkynna að rannsókn sakamáls sé hætt eða að mál hafi verið fellt niður með bréfpósti eða með því að senda skjal rafrænt í stafrænt pósthólf, sbr. 4. gr. laga um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda, nr. 105/2021.
2. Hefur komið til skoðunar að tilkynningar fari fram rafrænt, t.d. á vefsíðunni Ísland.is eða í rekjanlegum bréfpósti?
Embætti ríkislögreglustjóra rekur og ber ábyrgð á upplýsingakerfum lögreglu, sbr. 15. gr. reglugerðar nr. 325/2021 um starfsemi, hlutverk og ábyrgð embættis ríkislögreglustjóra og 5. gr. lögreglulaga. Lögregluembættin og héraðssaksóknari hafa nýtt stafræna pósthólfið í nokkur ár til að miðla upplýsingum vegna mála, svo sem vegna umferðarlagabrota, og er lögreglukerfið (LÖKE) skjalaveita fyrir pósthólfið, sbr. 4. gr. laga um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda, nr. 105/2021.
Árið 2022 voru send skjöl í stafræna pósthólfið vegna 6.906 mála, annarra en umferðarlagabrota. Í 6.111 þessara mála var send tilkynning vegna lykta máls (vísað frá, rannsókn hætt, mál fellt niður eða fallið frá saksókn).