Ferill 591. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1548  —  591. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um fjölda skurðhjúkrunarfræðinga í skurðaðgerðum.


     1.      Hverjar eru helstu ástæður þess að skurðstofur standa tómar á Landspítala?
    Ástæður þess að skurðstofur Landspítala eru ekki fullnýttar eru margþættar. Nýting á skurðstofum er háð samspili ýmissa þátta, svo sem þjónustuþörf, fjölda og skipulagi legurýma, mönnun og skipulagi mönnunar, skipulagi ferla, kjarasamninga og fleira.
    Legurými geta verið takmarkandi þáttur í nýtingu skurðstofa og er unnið að því á spítalanum að auka skilvirkni og flæði til að geta nýtt legurými Landspítala betur.
    Mönnun hefur einnig verið takmarkandi þáttur í nýtingu skurðstofa. Skipulag og starfsemi hverrar einingar hefur áhrif á mönnunarþarfir. Betri vinnutími í vaktavinnu hefur m.a. aukið mönnunarþörfina. Einnig er mönnun í skurðaðgerðum breytileg eftir eðli aðgerða. Landspítalinn skilgreinir ekki lágmarksviðmið um mönnun en er að vinna að því verkefni að greina nánar eigin viðmið mönnunar út frá sinni starfsemi.
    Landspítali er að vinna markvisst að því að bæta nýtingu skurðstofa samhliða því að rýna í skipulag og mönnunarþörf í samhengi við þjónustuþörfina.

     2.      Hver stýrir mönnun skurðstofa og skipulagi starfsemi skurðstofa á:
                  a.      Landspítala?
     Landspítali: Mönnun á skurðstofum Landspítala er nú stýrt af framkvæmdastjóra skurðlækningaþjónustu og skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu í samstarfi við framkvæmdastjórn spítalans og ekki síst framlínustjórnendur sviðsins, þ.e. yfirlækna og deildarstjóra. Áður en núverandi skipurit tók gildi 1. janúar sl. hvíldi ábyrgð á skurðstofustarfseminni á framkvæmdastjóra aðgerðasviðs og forstöðumönnum skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu annars vegar og skurðlækningaþjónustu hins vegar. Ákveðið var að sameina þessa starfsemi undir einni stjórn í von um að það mundi leiða til betri árangurs. Svipað skipulag ríkir í nágrannalöndunum en þó finnst breytileiki milli einstakra sjúkrahúsa.

                  b.      Öðrum vinnustöðum á Íslandi þar sem skurðaðgerðir eru framkvæmdar?
    Sjúkrahúsið á Akureyri: Á Sjúkrahúsinu á Akureyri ræðst fjöldi stöðugilda skurðhjúkrunarfræðinga af rekstraráætlun sem framkvæmdastjórn gefur út. Skipulag skurðstofustarfsemi er í höndum sérstakrar þverfaglegrar skurðstofunefndar en skipulag vinnu skurðstofuhjúkrunarfræðinga er í höndum forstöðuhjúkrunarfræðings skurðstofu.
    Á heilbrigðisstofnunum eru sett viðmið um mönnun skurðstofa og eru það stjórnendur skurðdeilda ásamt framkvæmdastjórum lækninga og hjúkrunar sem hafa það hlutverk.
    Læknastöðin Orkuhúsið: Framkvæmdastjóri, tveir skurðstofustjórar og yfirhjúkrunarfræðingur.
    Skurðstofan ehf.: Samstarf framkvæmdastjóra og forstöðuskurðhjúkrunarfræðings.
    Klíníkin: Framkvæmdastjóri Klíníkurinnar gerir skurðstofuplan u.þ.b. ár fram í tímann þar sem skurðlæknum eru úthlutað skurðstofum samkvæmt áætlaðri eftirspurn. Yfirmaður skurðstofa sér síðan um að skipuleggja mönnun á skurðstofum og stoðdeildum út frá því plani.

                  c.      Sambærilegum sjúkrahúsum á Norðurlöndum, t.d. Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi?

    Karólínska: Stýrt af yfirmanni skurðstofu sem er núna læknir en getur verið hjúkrunarfræðingur ef viðkomandi uppfyllir ákveðnar hæfniskröfur.

     3.      Hvaða reglur gilda um fjölda skurðhjúkrunarfræðinga í hverri skurðaðgerð á:
                  a.      Landspítala?
    Landspítali: Núverandi mönnunarlíkan gerir ráð fyrir 1,5 svæfingahjúkrunarfræðingum og 2,5 skurðhjúkrunarfræðingum fyrir hverja stofu. Lágmarksmönnun er þó skilgreind sem einn svæfingahjúkrunarfræðingur og tveir skurðhjúkrunarfræðingar og er það sá fjöldi sem miðað er við til að halda skurðstofum opnum.

                  b.      Öðrum vinnustöðum á Íslandi þar sem skurðaðgerðir eru framkvæmdar?
    Sjúkrahúsið á Akureyri: Fjöldi skurðhjúkrunarfræðinga fer eftir eðli og umfangi aðgerða. Venjulega eru tveir til þrír skurðhjúkrunarfræðingar á hverri skurðstofu yfir daginn. Á vöktum eru ávallt tveir skurðhjúkrunarfræðingar.
    Á skurðstofum heilbrigðisstofnana eru a.m.k. tveir skurðhjúkrunarfræðingar í hverri skurðaðgerð.
    Læknastöðin Orkuhúsið: Unnið er eftir þeim tilmælum sem koma fram í skýrslu á vegum embættis landlæknis, Skurðstofustarfsemi – Viðmið, og þeim lögum og reglum sem þar er vitnað til.
    Skurðstofan ehf.: Mat forstöðumanna í hverju tilfelli en vanalega einn til tveir hjúkrunarfræðingar í aðgerð. Ekki alltaf menntaður skurðhjúkrunarfræðingur en þá hjúkrunarfræðingur sem hlotið hefur staðbundna þjálfun á þessu sviði.
    Klíníkin: Á fullmannaðri skurðstofu eru skurðlæknir, svæfingalæknir og tveir hjúkrunarfræðingar.
                  c.      Sambærilegum sjúkrahúsum á Norðurlöndum, t.d. Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi?
    Breytilegt er hvernig mönnun er háttað á erlendum sjúkrahúsum, eða á bilinu einn til tveir skurðhjúkrunarfræðingar á hverri stofu að lágmarki, samkvæmt upplýsingum frá Landspítala.
    Karólínska: Einn svæfingahjúkrunarfræðingur og einn skurðhjúkrunarfræðingur, stundum enginn við einfaldar aðgerðir. Auk þess er einn sjúkraliði inni á stofu.

     4.      Hvað eru að jafnaði margir skurðhjúkrunarfræðingar í hverri skurðaðgerð á:
                  a.      Landspítala?
    Landspítali: Að jafnaði eru tveir skurðhjúkrunarfræðingar í hverri skurðaðgerð á Landspítala. Reynt er að hafa einn skurðhjúkrunarfræðing á milli tveggja stofa til að tryggja skilvirkni í flæði, skiptitíma og nýtingu skurðstofa.
    Í ákveðnum aðgerðum, t.d. enduruppbyggingu á brjósti, stórum hjarta- og kviðarholsaðgerðum, brunaaðgerðum og sýktum aðgerðum, eru skurðhjúkrunarfræðingar þrír í byrjun aðgerðar en tveir á meðan á aðgerð stendur. Landspítali sér um þjálfun allra skurðhjúkrunarfræðinga á Íslandi, m.a. að hluta fyrir Sjúkrahúsið á Akureyri, Heilbrigðisstofnun Vestfjarða og Heilbrigðisstofnun Austurlands. Þegar nýir hjúkrunarfræðingar koma til sérnáms í skurðhjúkrun, eða eru ráðnir án sérhæfingar í skurðhjúkrun, eru þeir þriðju á stofu til að byrja með á meðan þeir öðlast þá þekkingu og færni sem nauðsynleg er til að sinna hjúkrun á skurðstofum.
    Í ljósi kennsluhlutverks Landspítala sinna skurð- og svæfingahjúkrunarfræðingar jafnframt kennslu nemenda sem eru í námi í heilbrigðisgreinum.

                  b.      Öðrum vinnustöðum á Íslandi þar sem skurðaðgerðir eru framkvæmdar?
    Sjúkrahúsið á Akureyri: Að jafnaði eru tveir skurðhjúkrunarfræðingar við hverja aðgerð.
    Heilbrigðisstofnun Vesturlands: Í mörgum tilfellum eru þrír og í einstaka tilfellum eru þeir fjórir en það fer eftir umfangi aðgerða. Venjan er að hafa þrjá, þar sem einn stendur (steríll), einn er „í kring“ (umsjónarhjúkrunarfræðingur) og einn tekur á móti sjúklingi á stofuna með svæfingahjúkrunarfræðingi. Þetta er viðmiðið og „gullni standardinn“ sem kenndur er í háskólanum. Oft eru fleiri í byrjun aðgerðar en þegar aðgerð er komin af stað er hægt að nýta hjúkrunarfræðinga milli stofa. Í sumum tilfellum sinna skurðhjúkrunarfræðingar líka verkum aðstoðarlækna í aðgerðum ef skortur er á þeim. Hjá okkur má segja að séu tveir til þrír skurðhjúkrunarfræðingar að jafnaði við hverja aðgerð. Það er hægt að þjálfa hjúkrunarfræðinga til að sinna störfum skurðhjúkrunarfræðinga og við höfum góð dæmi um það hér á okkar deild á Akranesi. En miðað við skort á almennum hjúkrunarfræðingum hefur þessi umræða ekki skapast á þessari deild.
    Heilbrigðisstofnun Austurlands: Hjá HSA eru almennt þrír skurðhjúkrunarfræðingar og einn skurðlæknir. Hlutverk þeirra eru t.d. á þann veg að einn hjúkrunarfræðingur sér um kviðsjá, annar sér um áhöld og þriðji er í kring vanti eitthvað eða komi upp á. Síðan eru tveir skurðhjúkrunarfræðingar sem sinna vaktþjónustu allan sólarhringinn. Skurðhjúkrunarfræðingar á skurðstofu HSA starfa einnig á speglunareiningu við maga- og ristilspeglanir ásamt skurðlækni. Einnig taka skurðhjúkrunarfræðingar þátt í því að sinna bráðatilfellum innan og utan dagvinnutíma.
    Heilbrigðisstofnun Vestfjarða: Tveir skurðhjúkrunarfræðingar eru viðstaddir aðgerðir.
    Læknastöðin Orkuhúsið: Einn til þrír hjúkrunarfræðingar, það fer eftir umfangi og tegund aðgerða. Ekki alltaf menntaður skurðhjúkrunarfræðingur en þá hjúkrunarfræðingur sem hefur fengið staðbundna þjálfun.
    Skurðstofan ehf.: Mat forstöðumanna í hverju tilfelli en vanalega einn til tveir hjúkrunarfræðingar í aðgerð. Ekki alltaf menntaður skurðhjúkrunarfræðingar en þá hjúkrunarfræðingur sem hlotið hefur staðbundna þjálfun á þessu sviði.
    Klíníkin: Að jafnaði eru tveir skurðhjúkrunarfræðingar að störfum á hverri skurðstofu. Stundum er hjúkrunarfræðingur eða sjúkraliði sem er þjálfaður á staðnum í stað annars skurðhjúkrunarfræðings. Í einfaldari aðgerðum eru einn til tveir hjúkrunarfræðingar.

                  c.      Sambærilegum sjúkrahúsum á Norðurlöndum, t.d. Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi?

    Sjá svar við c-lið 3. tölul. fyrirspurnarinnar.

     5.      Er hægt að nýta krafta skurðhjúkrunarfræðinga betur á fleiri skurðstofum á Landspítala? Ef svo er, í hvaða aðgerðum helst? Hvenær þarf að bæta mönnun annarra heilbrigðisstétta eða sérþjálfaðs starfsfólks á móti?
    Landspítali: Landspítali hefur farið í mikla vinnu við að endurskilgreina hlutverk skurðhjúkrunarfræðinga og í dag er það svo að þeir sinna einungis þeim verkefnum sem stjórnendur telja að skurðhjúkrunarfræðingar einir geti sinnt. Verkefni hafa verið færð frá þeim yfir á sjúkraliða og sérhæfða aðstoðarmenn. Einnig var þróað nám í sótthreinsitækni í samstarfi við Fjölbrautaskólann í Ármúla.
    Það er mat Landspítala að styðja þurfi frekar við menntun skurðhjúkrunarfræðinga, auka ráðningu á hjúkrunarfræðingum án sérmenntunar inn á skurðstofur og fara aðrar leiðir til að fjölga starfsfólki heldur en að fækka skurðhjúkrunarfræðingum innan skurðstofanna.
    Með lokun skurðstofa á dagvinnutíma hefur aðgerðum utan dagvinnu fjölgað í kjölfarið, líkt og sjá má á mynd 1. Hlutfall heildartíma í aðgerð á dagvinnutíma hefur farið lækkandi á meðan hlutfall aðgerða sem fara fram yfir dagvinnutíma, hlutfall heildartíma í aðgerð að kvöld- og næturlagi sem og á helgum og frídögum, hefur aukist.

Mynd 1.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.










     6.      Vinnur Landspítali og/eða ráðuneytið að því að bæta mönnun annarra stétta eða sérþjálfaðs starfsfólks á skurðstofum?
    Landspítali hefur aukið mönnun sjúkraliða, sérhæfðra aðstoðarmanna, sótthreinsitækna og hjúkrunarfræðinga án sérmenntunar í skurðhjúkrun til að mæta mönnunarvanda skurðstofanna og mun halda áfram á sömu braut.
    Heilbrigðisráðuneytið hefur lagt til forgangsaðgerðir í þágu heilbrigðismenntunar og unnið er að því að koma þeim til framkvæmda. Sjá vef ráðuneytisins. 1

     7.      Er til tölfræði sem sýnir nýtingu skurðstofa hjá:
                  a.      Landspítala?
    Landspítali: Mynd 2 sýnir nýtingu skurðstofa í Fossvogi stærstan hluta ársins 2022. Efri línan sýnir nýtingu út frá þeim opnu stofum sem við höfum en sú neðri sýnir heildarnýtinguna miðað við það skurðstofupláss sem Landspítali hefur. Vakin er athygli á að þrif á skurðstofum milli aðgerða eru ekki talin með í mati á nýtingartímanum. Mynd 3 sýnir sambærilega nýtingu á skurðstofum á Hringbraut. Lækkun í nýtingu í ágúst á Hringbraut skýrist af því að fleiri skurðstofur voru opnar en starfsfólk gat annað.

Mynd 2.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.









Mynd 3.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.











                  b.      Öðrum vinnustöðum á Íslandi þar sem skurðaðgerðir eru framkvæmdar?
    Sjúkrahúsið á Akureyri: Í dagvinnu er að jafnaði áætluð um 90% nýting en þar sem aukning hefur verið í bráðaaðgerðum sem vinna þarf utan dagvinnutíma má segja að um sé að ræða 100% nýtingu á þessum skurðstofum.
    Tölfræði um nýtingu skurðstofa á heilbrigðisstofnunum liggur ekki fyrir.
    Á HSA er helsta ástæða fyrir því að skurðstofa er ekki nýtt sú að ekki tekst að manna hana með skurðlækni. Þó eru slíkir dagar stundum nýttir af farandsérfræðingum og tannlækni til aðgerða.
    Læknastöðin Orkuhúsið: Nýting skurðstofa er 90–95%.
    Skurðstofan ehf.: Við erum með tvær fullbúnar skurðstofur sem eru nær fullnýttar alla virka daga kl. 8–16.
    Klíníkin: Við rekum fjórar skurðstofur fimm daga vikunnar. Nýtingarhlutfall árið 2022 var um 93%. Útlit er fyrir að þetta hlutfall verði heldur hærra í ár.

                  c.      Sambærilegum sjúkrahúsum á Norðurlöndum, t.d. Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi?

    Karólínska: Nýting skurðstofa á virkum dögum kl.7:30–17:30 er 100%. 77 skurðstofur eru á Karólínska.

     8.      Hvaða áhrif hefur stytting vinnuviku í síðasta kjarasamningi haft á framleiðni skurðstofa Landspítalans og annarra vinnustaða á Íslandi þar sem skurðaðgerðir eru framkvæmdar?
    Eins og fram kemur í svari við 1. tölul. fyrirspurnarinnar ýtti stytting vinnuvikunnar undir manneklu á skurðstofum Landspítala. Stöðugildum fækkaði um fjögur á skurðstofum í Fossvogi og sjö á skurðstofum við Hringbraut.
    Heilbrigðisstofnun Vesturlands: Stytting vinnuvikunnar hefur þrengt að starfseminni og ekki næst að hafa sama opnunartíma og var þar sem skurðstofan flokkast sem dagvinna með bakvöktum en ekki vaktavinna. Vegna þess fylgdi ekki fjármagn til að fylla í þær eyður sem sköpuðust í vinnutíma þegar viðvera hvers starfsmanns fór úr 40 klst. á viku í 36 klst.
    Sjúkrahúsið á Akureyri: Stytting vinnuvikunnar jafngildir 1,5 stöðugildum skurðhjúkrunarfræðinga á SAk. Áhrif styttingarinnar hafa ekki verið mæld. Huglægt mat forstöðumanns er að áhrif styttingar á framleiðni skurðstofunnar hafi verið óveruleg.
    Á öðrum heilbrigðisstofnunum hefur stytting vinnuvikunnar ekki haft teljandi áhrif.
    Læknastöðin Orkuhúsið: Stytting vinnuviku hefur engin áhrif haft á framleiðni en leiðir til þess að umframmönnun þarf að vera meiri en ella.
    Skurðstofan ehf.: Engin áhrif.
    Klíníkin: Stytting vinnuviku hefur bein línuleg áhrif á framleiðni. Afköst væru um 4% meiri ef ekki hefði komið til styttingar vinnuvikunnar.
1     www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2022/10/19/Forgangsadgerdir-i-thagu-heilbri gdismenntunar-/