Ferill 525. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1556 — 525. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um fjölda stöðugilda hjá ríkinu.
1. Hver var fjöldi stöðugilda hjá ríkinu, þ.e. þar sem Fjársýsla ríkisins er launagreiðandi, ár hvert á tímabilinu 2011–2021, sundurliðað eftir landshlutum og eftirfarandi störfum:
a. störfum innan menntakerfisins,
b. störfum við löggæslu,
c. störfum innan heilbrigðiskerfisins,
d. störfum við stjórnsýslu, og
e. öðrum störfum?
Fjölda starfa hjá ríkinu árin 2011–2021 má sjá í eftirfarandi yfirliti. Miðað er við fjölda stöðugilda í október ár hvert, þar sem Fjársýsla ríkisins er launagreiðandi. Einnig er rétt að nefna að með hugtakinu stöðugildi er átt við ígildi fullra starfa í dagvinnu í viðkomandi mánuði, þ.e. tvö 50% störf teljast sem eitt stöðugildi, og með því teljast ekki starfsmenn í launalausu leyfi eða fæðingarorlofi sem ekki eru á launum.
Í launakerfi Fjársýslu ríkisins er skráð póstnúmer starfsstöðva og er miðað við þá skráningu við sundurliðun eftir landshlutum:
Póstnúmer 100–229 og 270: Höfuðborgarsvæðið
Póstnúmer 230–260: Suðurnes
Póstnúmer 300–390: Vesturland
Póstnúmer 400–490: Vestfirðir
Póstnúmer 500–690: Norðurland
Póstnúmer 700–790: Austurland
Póstnúmer 800–900: Suðurland
Í flestum tilvikum er skráð póstnúmer starfsstöðvar, en sumar stofnanir skrá í launakerfi eingöngu póstnúmerið 150 Reykjavík og falla þá störfin undir höfuðborgarsvæðið. Sem dæmi má taka að öll störf Veðurstofunnar raðast undir „önnur störf“, á höfuðborgarsvæðinu þótt hluti starfsmanna sé staðsettur annars staðar.
ÁTVR og ÍSOR voru í launakerfi Fjársýslunnar fram til ársins 2015 en frá 2016 standa þær stofnanir utan miðlægs launakerfis ríkisins. Skýrir það fækkun í flokknum „önnur störf“ árið 2016.
Störfin eru sundurliðuð á eftirfarandi hátt:
a. Menntakerfi: Öll störf innan skóla.
b. Löggæsla: Öll störf í lögreglunni og hluti starfa sýslumannsembætta sem fellur undir löggæslu til ársins 2014.
c. Heilbrigðiskerfi: Öll störf innan heilbrigðisstofnana og heilsugæslu.
d. Stjórnsýsla: Störf í Stjórnarráði Íslands.
e. Önnur störf
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
2. Hver var fjöldi stöðugilda hjá opinberum hlutafélögum og bönkum í ríkiseigu ár hvert á tímabilinu 2011–2021, sundurliðað eftir landshlutum?
Fjöldi stöðugilda hjá opinberum hlutafélögum og bönkum árin 2011–2021 og skipting eftir landshlutum kemur fram í eftirfarandi yfirliti.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
3. Hver var fjöldi stöðugilda hvers ráðuneytis og undirstofnana þeirra á árinu 2021?
Í yfirlitinu hér fyrir neðan er ráðuneytum og undirstofnunum þeirra raðað eftir númeri fjárlagaliðar. Upplýsingarnar eru sóttar úr launakerfi Fjársýslu ríkisins og sýna fjölda stöðugilda á árinu 2021. Í yfirlitinu eru fleiri rekstrarliðir þar sem starfsmenn eru á launaskrá en þeir sem teljast beinlínis vera ríkisstofnanir. Til að teljast til stofnana er litið svo á að rekstrareiningu þurfi m.a. að vera stýrt af forstöðumanni en það á ekki við um alla fjárlagaliði. Í yfirlitinu eru allir fjárlagaliðir með skráð stöðugildi meðtaldir í þeim tilgangi að innifela öll stöðugildi að baki heildarfjölda ársins 2021, sem samtals voru 19.164 stöðugildi.
| Fjöldi | ||
| Æðsta stjórn ríkisins | 336 | |
| 00101 | Embætti forseta Íslands | 14 |
| 00201 | Alþingi | 212 |
| 00301 | Ríkisstjórn | 43 |
| 00401 | Hæstiréttur | 7 |
| 00610 | Umboðsmaður Alþingis | 18 |
| 00620 | Ríkisendurskoðun | 42 |
| Forsætisráðuneyti | 195 | |
| 01101 | Forsætisráðuneyti, aðalskrifstofa | 44 |
| 01201 | Fasteignir forsætisráðuneytis | 4 |
| 01241 | Umboðsmaður barna | 5 |
| 01261 | Óbyggðanefnd | 3 |
| 01271 | Ríkislögmaður | 12 |
| 01313 | Jafnréttisstofa | 8 |
| 01401 | Hagstofa Íslands | 119 |
| Mennta- og menningarmálaráðuneyti | 4.686 | |
| 02101 | Mennta- og menningarmálaráðuneyti, aðalskrifstofa | 72 |
| 02201 | Háskóli Íslands | 1.675 |
| 02202 | Tilraunastöð HÍ að Keldum | 46 |
| 02203 | Raunvísindastofnun Háskólans | 136 |
| 02209 | Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum | 59 |
| 02210 | Háskólinn á Akureyri | 220 |
| 02216 | Landbúnaðarháskóli Íslands | 94 |
| 02217 | Háskólinn á Hólum | 56 |
| 02231 | Rannsóknamiðstöð Íslands | 59 |
| 02299 | Fræða- og þekkingarsetur | 1 |
| 02301 | Menntaskólinn í Reykjavík | 70 |
| 02302 | Menntaskólinn á Akureyri | 67 |
| 02303 | Menntaskólinn að Laugarvatni | 21 |
| 02304 | Menntaskólinn við Hamrahlíð | 99 |
| 02305 | Menntaskólinn við Sund | 70 |
| 02306 | Menntaskólinn á Ísafirði | 36 |
| 02307 | Menntaskólinn á Egilsstöðum | 39 |
| 02308 | Menntaskólinn í Kópavogi | 98 |
| 02309 | Kvennaskólinn í Reykjavík | 63 |
| 02350 | Fjölbrautaskólinn í Breiðholti | 119 |
| 02351 | Fjölbrautaskólinn við Ármúla | 96 |
| 02352 | Flensborgarskóli | 80 |
| 02353 | Fjölbrautaskóli Suðurnesja | 88 |
| 02354 | Fjölbrautaskóli Vesturlands | 57 |
| 02355 | Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum | 27 |
| 02356 | Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra | 56 |
| 02357 | Fjölbrautaskóli Suðurlands | 99 |
| 02358 | Verkmenntaskóli Austurlands | 28 |
| 02359 | Verkmenntaskólinn á Akureyri | 131 |
| 02360 | Fjölbrautaskólinn í Garðabæ | 66 |
| 02361 | Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu | 26 |
| 02362 | Framhaldsskólinn á Húsavík | 15 |
| 02363 | Framhaldsskólinn á Laugum | 21 |
| 02365 | Borgarholtsskóli | 113 |
| 02367 | Fjölbrautaskóli Snæfellinga | 26 |
| 02370 | Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ | 37 |
| 02372 | Menntaskólinn á Tröllaskaga | 25 |
| 02430 | Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra | 23 |
| 02723 | Menntamálastofnun | 55 |
| 02872 | Lánasjóður íslenskra námsmanna | 39 |
| 02902 | Þjóðminjasafn Íslands | 44 |
| 02903 | Þjóðskjalasafn Íslands | 34 |
| 02905 | Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn | 70 |
| 02906 | Listasafn Einars Jónssonar | 3 |
| 02907 | Listasafn Íslands | 21 |
| 02908 | Kvikmyndasafn Íslands | 9 |
| 02909 | Hljóðbókasafn Íslands | 7 |
| 02911 | Náttúruminjasafn Íslands | 12 |
| 02913 | Gljúfrasteinn – hús skáldsins | 3 |
| 02915 | Minjastofnun Íslands | 23 |
| 02918 | Safnasjóður | 1 |
| 02961 | Fjölmiðlanefnd | 4 |
| 02972 | Íslenski dansflokkurinn | 14 |
| 02973 | Þjóðleikhúsið | 121 |
| 02974 | Sinfóníuhljómsveit Íslands | 94 |
| 02981 | Kvikmyndamiðstöð Íslands | 8 |
| 02982 | Samningar og styrkir á sviði lista og menningar | 2 |
| 02985 | Rammaáætlanir ESB um menntun, rannsóknir og tækniþróun | 2 |
| 02989 | Samningar og styrkir til íþróttamála | 5 |
| Utanríkisráðuneyti | 243 | |
| 03101 | Utanríkisráðuneyti, aðalskrifstofa | 120 |
| 03111 | Þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytis | 31 |
| 03213 | Varnarmál | 7 |
| 03300 | Sendiráð Íslands | 58 |
| 03390 | Alþjóðleg þróunarsamvinna | 26 |
| Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti | 585 | |
| 04101 | Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, aðalskrifstofa | 69 |
| 04215 | Fiskistofa | 60 |
| 04217 | Verðlagsstofa skiptaverðs | 4 |
| 04234 | Matvælastofnun | 97 |
| 04238 | Neytendastofa | 15 |
| 04246 | Samkeppniseftirlitið | 27 |
| 04251 | Hugverkastofan | 33 |
| 04252 | Faggildingarsvið Hugverkastofu | 2 |
| 04406 | Hafrannsóknastofnun | 185 |
| 04421 | Bygging rannsóknastofnana sjávarútvegsins | 0 |
| 04501 | Nýsköpunarmiðstöð Íslands | 37 |
| 04551 | Ferðamálastofa | 23 |
| 04571 | Orkustofnun | 34 |
| Dómsmálaráðuneyti | 2.011 | |
| 06101 | Dómsmálaráðuneyti, aðalskrifstofa | 40 |
| 06102 | Stjórnartíðindi | 2 |
| 06151 | Kærunefnd útlendingamála | 17 |
| 06190 | Ýmis verkefni | 2 |
| 06201 | Hæstiréttur | 7 |
| 06205 | Landsréttur | 31 |
| 06210 | Héraðsdómstólar | 85 |
| 06220 | Dómstólasýslan | 6 |
| 06236 | Sanngirnisbætur vegna misgjörða á vistheimilum fyrir börn | 1 |
| 06251 | Persónuvernd | 19 |
| 06300 | Héraðssaksóknari | 62 |
| 06301 | Ríkissaksóknari | 15 |
| 06303 | Ríkislögreglustjóri | 170 |
| 06310 | Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu | 397 |
| 06312 | Lögreglustjórinn á Suðurnesjum | 164 |
| 06313 | Lögreglustjórinn á Vesturlandi | 45 |
| 06314 | Lögreglustjórinn á Vestfjörðum | 28 |
| 06315 | Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra | 23 |
| 06316 | Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra | 77 |
| 06317 | Lögreglustjórinn á Austurlandi | 31 |
| 06318 | Lögreglustjórinn á Suðurlandi | 79 |
| 06319 | Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum | 17 |
| 06390 | Ýmis löggæslu- og öryggismál | 3 |
| 06395 | Landhelgisgæsla Íslands | 211 |
| 06397 | Schengen-samstarf | 3 |
| 06398 | Útlendingastofnun | 44 |
| 06399 | Umsækjendur um alþjóðlega vernd | 34 |
| 06441 | Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu | 105 |
| 06442 | Sýslumaðurinn á Vesturlandi | 17 |
| 06443 | Sýslumaðurinn á Vestfjörðum | 18 |
| 06444 | Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra | 23 |
| 06445 | Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra | 26 |
| 06446 | Sýslumaðurinn á Austurlandi | 10 |
| 06447 | Sýslumaðurinn á Suðurlandi | 27 |
| 06448 | Sýslumaðurinn á Suðurnesjum | 21 |
| 06449 | Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum | 9 |
| 06490 | Ýmis rekstrarkostnaður sýslumannsembætta | 2 |
| 06501 | Fangelsismálastofnun ríkisins | 142 |
| Félagsmálaráðuneyti | 767 | |
| 07101 | Félagsmálaráðuneyti, aðalskrifstofa | 48 |
| 07151 | Úrskurðarnefnd velferðarmála | 10 |
| 07190 | Ýmis verkefni | 8 |
| 07302 | Ríkissáttasemjari | 4 |
| 07320 | Mannvirkjastofnun | 29 |
| 07322 | Húsnæðis- og mannvirkjastofnun | 81 |
| 07329 | Fjölmenningarsetur | 6 |
| 07331 | Vinnueftirlit ríkisins | 66 |
| 07341 | Umboðsmaður skuldara | 15 |
| 07400 | Barnaverndarstofa | 103 |
| 07700 | Málefni fatlaðra | 9 |
| 07750 | Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins | 55 |
| 07755 | Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu | 23 |
| 07821 | Tryggingastofnun ríkisins | 94 |
| 07980 | Vinnumálastofnun | 210 |
| 07981 | Vinnumál | 1 |
| 07999 | Félagsmál, ýmis starfsemi | 3 |
| 21210 | Rekstrarfélagið Borgartúni 21 | 3 |
| Heilbrigðisráðuneyti | 8.217 | |
| 08101 | Heilbrigðisráðuneyti, aðalskrifstofa | 55 |
| 08202 | Sjúkratryggingar Íslands | 126 |
| 08301 | Landlæknir | 76 |
| 08317 | Lyfjastofnun | 77 |
| 08327 | Geislavarnir ríkisins | 9 |
| 08358 | Sjúkrahúsið á Akureyri | 571 |
| 08373 | Landspítali | 4.794 |
| 08399 | Heilbrigðismál, ýmis starfsemi | 8 |
| 08506 | Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins | 645 |
| 08716 | Heilbrigðisstofnun Vesturlands | 274 |
| 08726 | Heilbrigðisstofnun Vestfjarða | 197 |
| 08757 | Heilbrigðisstofnun Norðurlands | 430 |
| 08777 | Heilbrigðisstofnun Austurlands | 299 |
| 08787 | Heilbrigðisstofnun Suðurlands | 397 |
| 08791 | Heilbrigðisstofnun Suðurnesja | 225 |
| 08807 | Heyrnar- og talmeinastöð Íslands | 21 |
| 88374 | LSH verkefni | 13 |
| Fjármála- og efnahagsráðuneyti | 799 | |
| 09101 | Fjármála- og efnahagsráðuneyti, aðalskrifstofa | 76 |
| 09103 | Fjársýsla ríkisins | 82 |
| 09190 | Ýmis verkefni | 10 |
| 09210 | Skatturinn | 456 |
| 09214 | Yfirskattanefnd | 9 |
| 09215 | Skattrannsóknarstjóri ríkisins | 11 |
| 09381 | Lífeyrisskuldbindingar, eftirlaun | 6 |
| 09901 | Framkvæmdasýsla ríkisins | 47 |
| 09905 | Ríkiskaup | 30 |
| 09977 | Bankasýsla ríkisins | 3 |
| 09980 | Umbra – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins | 40 |
| 09984 | Ríkiseignir | 16 |
| 09999 | Ýmislegt | 13 |
| Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti | 691 | |
| 10101 | Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, aðalskrifstofa | 44 |
| 10190 | Ýmis verkefni | 1 |
| 10211 | Vegagerðin | 358 |
| 10221 | Samgöngustofa | 141 |
| 10231 | Rannsóknarnefnd samgönguslysa | 7 |
| 10512 | Póst- og fjarskiptastofnun | 33 |
| 10601 | Þjóðskrá Íslands | 106 |
| Umhverfis- og auðlindaráðuneyti | 635 | |
| 14101 | Umhverfis- og auðlindaráðuneyti, aðalskrifstofa | 45 |
| 14151 | Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála | 9 |
| 14190 | Ýmis verkefni | 1 |
| 14202 | Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn | 2 |
| 14211 | Umhverfisstofnun | 117 |
| 14212 | Vatnajökulsþjóðgarður | 52 |
| 14216 | Þjóðgarðurinn á Þingvöllum | 15 |
| 14231 | Landgræðsla ríkisins | 66 |
| 14241 | Skógræktin | 64 |
| 14287 | Úrvinnslusjóður | 5 |
| 14301 | Skipulagsstofnun | 27 |
| 14310 | Landmælingar Íslands | 22 |
| 14401 | Náttúrufræðistofnun Íslands | 48 |
| 14407 | Stofnun Vilhjálms Stefánssonar | 5 |
| 14412 | Veðurstofa Íslands | 157 |
| Samtals | 19.164 |