Ferill 810. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1605  —  810. mál.




Svar


félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Viðari Eggertssyni um jaðaráhrif tekjutenginga og tekjuskatts í almannatryggingum.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvernig miðar áfram þeirri vinnu að „draga úr jaðaráhrifum tekjutenginga og tekjuskatts í almannatryggingum og gera kerfið gagnsærra og réttlátara“ eins og segir í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar frá 2021 þar sem einnig kemur fram að ríkisstjórnin ætli að bæta afkomu ellilífeyristaka og líta sérstaklega til þeirra sem lakast standa? Hvernig sér ráðherra fyrir sér næstu skref í kjölfarið?

    Þessari vinnu miðar ágætlega. Hvað breytingar á greiðslum til aldraðra varðar þá var sérstakt frítekjumark vegna atvinnutekna við útreikning ellilífeyris og heimilisuppbótar hækkað úr 1.200.000 kr. á ári í 2.400.000 kr. frá 1. janúar 2022 og sama gildir um frítekjumark vegna atvinnutekna þeirra sem fá greiddan hálfan ellilífeyri.
    Hvað örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega varðar má nefna að skerðingarhlutfall örorkulífeyris, örorkustyrks, aldurstengdrar örorkuuppbótar og endurhæfingarlífeyris lækkaði úr 25% í 11% frá 1. janúar 2022 og var þannig komið í veg fyrir svokallað „fall á krónunni“ sem lýsir sér þannig að greiðslur almannatrygginga gátu lækkað talsvert við það að tekjur lífeyrisþega hækkuðu lítillega. Einnig var regla um búsetuútreikning sérstakrar uppbótar vegna framfærslu afnumin frá 8. apríl sama ár. Þá var sérstakt frítekjumark vegna atvinnutekna örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega hækkað úr 1.200.000 kr. á ári í 2.400.000 kr. frá 1. janúar 2023 auk þess sem skerðingarhlutfall örorkulífeyris, örorkustyrks, aldurstengdrar örorkuuppbótar og endurhæfingarlífeyris lækkaði úr 11% í 9%. Einnig má nefna að greiðslutímabil endurhæfingarlífeyris var lengt úr allt að þremur árum í allt að fimm ár frá síðustu áramótum. Framangreindar breytingar eru taldar stuðla að því að auka möguleika aldraðra, öryrkja og þeirra sem búa við mismikla starfsgetu til atvinnuþátttöku og geta þannig bætt lífskjör og lífsgæði þeirra. Er það í samræmi við það markmið stjórnvalda að sem flestir geti framfleytt sér sjálfir með tekjum sínum en að þeir einstaklingar sem geti það ekki fái greiðslur frá almannatryggingum.
    Að undanförnu hefur megináherslan verið lögð á að vinna að einföldun almannatryggingakerfisins hvað varðar örorku og auka stuðning við þann hóp öryrkja sem hefur mjög lágar eða engar tekjur sér til framfærslu aðrar en bætur almannatrygginga. Næstu skref eru að fylgja því áfram eftir og er horft til þeirra breytinga sem gerðar voru á ellilífeyriskerfinu og tóku gildi 1. janúar 2017 þar sem bótaflokkar voru sameinaðir og þeim þar með fækkað og útreikningar einfaldaðir. Hafa verið settir á laggirnar starfshópar sem ætlað er að vinna að framgangi þeirra breytinga með það að leiðarljósi að gera greiðslukerfið gagnsærra og réttlátara en það sem gildir í dag. Þessir starfshópar eru enn að störfum enda um mjög umfangsmikið mál að ræða. Félags- og vinnumarkaðsráðherra hyggst leggja fram frumvarp um kerfisbreytingu í örorkulífeyriskerfinu í upphafi næsta þingvetrar.
    Þá skipaði félags- og vinnumarkaðsráðherra starfshóp í nóvember 2022 sem í eru fulltrúar félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins, fjármála- og efnahagsráðuneytisins og innviðaráðuneytisins. Starfshópnum var falið að yfirfara fyrirliggjandi tillögur á málefnasviðum ráðuneytanna er varða afkomu, atvinnuþátttöku og húsnæðismál eldra fólks og vinna nýjar tillögur eftir þörfum í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar í stjórnarsáttmála. Starfshópurinn hefur ekki lokið störfum.