Ferill 425. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1612 — 425. mál.
Svar
félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Guðmundi Inga Kristinssyni um skerðingu réttinda almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar.
1. Hverjar eru skerðingarreglur einstakra réttindaflokka laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, og laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007?
Réttindaflokkar laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, eru ellilífeyrir, örorkulífeyrir, örorkustyrkur, aldurstengd örorkuuppbót og tekjutrygging.
Fullur ellilífeyrir er 3.693.948 kr. á ári. Fjárhæð ellilífeyris lækkar um 45% af eigin tekjum lífeyrisþega eftir að frítekjumörkum er náð uns lífeyririnn fellur niður. Við útreikning fulls ellilífeyris hefur lífeyrisþegi almennt frítekjumark sem nemur 300.000 kr. á ári og sérstakt frítekjumark vegna atvinnutekna sem nemur 2.400.000 kr. á ári.
Fullur örorkulífeyrir er 698.664 kr. á ári. Fjárhæð örorkulífeyris lækkar um 9% af eigin tekjum lífeyrisþega eftir að frítekjumörkum er náð uns greiðslur falla niður. Við útreikning fulls örorkulífeyris teljast fjármagnstekjur upp að 98.640 kr. á ári ekki til tekna. Þá hefur greiðsluþegi almennt frítekjumark sem nemur 2.575.220 kr. á ári.
Fullur örorkustyrkur er 516.492 kr. á ári. Fjárhæð örorkustyrks lækkar vegna tekna samkvæmt sömu reglum og gilda um örorkulífeyri.
Mánaðarleg fjárhæð aldurstengdrar örorkuuppbótar er hlutfall af fullum örorkulífeyri og miðast við þann aldur þegar einstaklingur var í fyrsta sinn metinn 75% öryrki. Um útreikning á fjárhæð aldurstengdrar örorkuuppbótar vegna tekna fer eftir sömu reglum og gilda um örorkulífeyri.
Tekjutrygging er 2.237.328 kr. á ári. Fjárhæð tekjutryggingar lækkar um 38,35% af eigin tekjum greiðsluþega eftir að frítekjumörkum er náð uns greiðslur falla niður. Við útreikning tekjutryggingar hefur greiðsluþegi sérstakt frítekjumark vegna atvinnutekna sem nemur 2.400.000 kr. á ári og sérstakt frítekjumark vegna lífeyrissjóðstekna sem nemur 328.800 kr. á ári. Þá teljast fjármagnstekjur upp að 98.640 kr. á ári ekki til tekna.
Réttindaflokkar laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, eru endurhæfingarlífeyrir, heimilisuppbót og sérstök uppbót til framfærslu.
Fullur endurhæfingarlífeyrir er 698.664 kr. á ári. Um útreikning endurhæfingarlífeyris fer eftir sömu reglum og gilda um örorkulífeyri.
Full heimilisuppbót til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega er 756.240 kr. á ári. Fjárhæð heimilisuppbótar lækkar um 12,96% af eigin tekjum greiðsluþega eftir að frítekjumörkum er náð uns greiðslur falla niður. Um útreikning heimilisuppbótar til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega fer eftir sömu reglum og gilda um tekjutryggingu.
Full heimilisuppbót til ellilífeyrisþega er 933.444 kr. á ári. Fjárhæð heimilisuppbótar lækkar um 11,9% af eigin tekjum greiðsluþega eftir að frítekjumörkum er náð uns greiðslur falla niður. Um útreikning heimilisuppbótar til ellilífeyrisþega fer eftir sömu reglum og gilda um ellilífeyri.
Við útreikning sérstakrar uppbótar vegna framfærslu örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega skal telja til tekna 65% af tekjum lífeyrisþega. Bætur samkvæmt lögum um félagslega aðstoð og lögum um almannatryggingar skulu þó teljast að fullu til tekna við útreikning uppbótarinnar, að því undanskildu að einungis skal telja til tekna 50% af fjárhæð aldurstengdrar örorkuuppbótar og 95% af fjárhæð tekjutryggingar. Framfærsluviðmið eru 389.301 kr. á mánuði vegna þeirra sem búa einir og 309.616 kr. á mánuði vegna þeirra sem búa með öðrum, sbr. reglugerð nr. 1439/2022, um fjárhæðir frítekjumarka (tekjumarka) almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2023.
2. Hve mikið hafa greiðslur úr ríkissjóði til einstaklinga lækkað vegna reglnanna á ári hverju undanfarin þrjú ár og hvernig skiptast þær fjárhæðir milli réttindaflokka?
Í meðfylgjandi töflu má sjá hvað greiðslur úr ríkissjóði hefðu hækkað í milljónum króna talið á hverju ári á árunum 2020–2022 í hverjum réttindaflokki fyrir sig ef engar skerðingarreglur hefðu verið til staðar.
| 2020 | 2021 | 2022 | |
| Ellilífeyrir | 42468 | 48135 | 51319 |
| Örorkulífeyrir | 652 | 721 | 560 |
| Endurhæfingarlífeyrir | 34 | 56 | 20 |
| Örorkustyrkur | 94 | 92 | 76 |
| Tekjutrygging | 8904 | 9754 | 10422 |
| Aldurstengd örorkuuppbót | 338 | 399 | 317 |
| Heimilisuppbót ellilífeyris | 2685 | 3035 | 3312 |
| Heimilisuppbót örorku og endurhæfingar | 721 | 833 | 900 |
| Sérstök uppbót til framfærslu | 6132 | 7159 | 8144 |
| Samtals: | 62028 | 70184 | 75070 |