Ferill 950. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1715  —  950. mál.




Svar


háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn frá Eyjólfi Ármannssyni um aðgerðir Háskóla Íslands gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hve margar ábendingar eða kvartanir hafa borist Háskóla Íslands um meint einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni eða ofbeldi af hálfu starfsmanna skólans á ári hverju, árin 2016–2023? Svar óskast sundurliðað eftir fræðasviðum.
     2.      Hve oft hefur Háskóli Íslands brugðist við slíkum ábendingum eða kvörtunum, sbr. 1. málsl. 1. mgr. 7. gr. reglugerðar nr. 1009/2015, um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum, á umræddu tímabili?
     3.      Hve oft hefur mat á aðstæðum leitt í ljós rökstuddan grun um einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni eða ofbeldi af hálfu starfsmanns Háskóla Íslands á umræddu tímabili? Til hvaða aðgerða hefur verið gripið í þeim tilvikum?


    Fyrirspurnin var send til umsagnar Háskóla Íslands og eru eftirfarandi svör byggð á upplýsingum frá háskólanum.
    Háskóli Íslands er með skýra verkferla í málum er varða kynferðislega og kynbundna áreitni og ofbeldi, og einelti og annað ofbeldi. Háskólinn setti sér verklagsreglur um viðbrögð við kynferðislegri og kynbundinni áreitni og ofbeldi árið 2014. Þær voru endurskoðaðar árið 2018, þar á meðal ákvæði um meðferð kvartana. Árið 2014 var jafnframt sett á fót fagráð Háskóla Íslands sem hefur það hlutverk að taka til meðferðar mál er varða slík brot starfsfólks eða nemenda Háskóla Íslands. Fagráðið er skipað þremur aðilum og er í verklagsreglum kveðið á um að formaður þess sé aðili með fagþekkingu og reynslu af meðferð mála af þessu tagi og sé ekki í föstu starfi við HÍ.
    Háskólinn setti sér verklagsreglur um viðbrögð við einelti og öðru ofbeldi árið 2017. Jafnframt var sett á fót viðbragðsteymi vegna eineltis og ofbeldis árið 2017, sem tekur til meðferðar mál er varða möguleg brot innan Háskóla Íslands. Teymið er skipað þremur aðilum og er í verklagsreglum kveðið á um þau skuli hafa þekkingu og reynslu af meðferð mála af þessu tagi, og að formaður þess sé aðili sem ekki sé í föstu starfi við HÍ.
    Áhersla er lögð á fræðslu til stjórnenda, starfsfólks og nemenda við HÍ um málaflokkinn og að kynna verklagsreglurnar og fagráð HÍ svo fólk viti hvert það eigi að leita, komi slík mál upp. Enn fremur er lögð áhersla á þennan málaflokk í jafnréttisáætlun HÍ.
    Á árunum 2016–2023 bárust alls 24 slíkar ábendingar eða kvartanir, miðað við apríl 2023. Þær skiptast þannig á fræðasvið: Félagsvísindasvið 8, Heilbrigðisvísindasvið 4, Hugvísindasvið 2, Menntavísindasvið 3, Verkfræði- og náttúruvísindasvið 5, og miðlæg stjórnsýsla 3. Í einu tilviki varðaði kvörtun starfsfólk á fleiri en einu fræðasviði.
    Í öllum tilvikum var brugðist við ábendingum og kvörtunum, og þær teknar til athugunar. Uppfylli kvörtun eða ábending skilyrði málsmeðferðar (m.a. að aðili sem kvartað er undan tilheyri hópi starfsfólks eða nemenda, og að efni kvörtunar heyri undir verksvið fagráðs eða viðbragðsteymis) er mál tekið til formlegrar meðferðar, nema sérstakar ástæður liggi fyrir (t.d. að málshefjandi óski eftir að mál sé ekki tekið til formlegrar meðferðar). Alls uppfylltu 18 mál þessi skilyrði. Óháð formlegri málsmeðferð er þeim sem leita til fagráðs eða viðbragðsteymis jafnan boðin aðstoð sálfræðings án endurgjalds, og í mörgum tilvikum eru gerðar tillögur um það sem betur mætti fara í starfsumhverfi viðkomandi einingar ef ástæða er til.
    Í fjórum tilvikum var það niðurstaða fagráðs eða viðbragðsteymis að um væri að ræða einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni eða ofbeldi af hálfu starfsmanns Háskóla Íslands, eins og þau hugtök eru skilgreind samkvæmt lögum og reglum sem um málaflokkana gilda. Í þeim tilvikum leggur fagráð eða viðbragðsteymi fram tillögur til aðgerða og úrbóta í samræmi við gildandi verklagsreglur. Slíkar tillögur miða að því að stöðva umrædda hegðun og gera ráðstafanir til að sú hegðun endurtaki sig ekki. Aðgerðir hafa tekið mið af framangreindu og m.a. falið í sér breytingar á vinnuaðstæðum eða vinnutilhögun, meðferð og fræðslu vegna samskipta í viðkomandi starfseiningu og þjálfun stjórnenda. Það er svo mat stjórnenda hverju sinni hvort grípa þurfi til sérstakra aðgerða gagnvart starfsfólki sem hefur orðið uppvíst að slíkri hegðun sem hér um ræðir, en þær aðgerðir markast m.a. af þeim heimildum sem stjórnendum eru fengnar með ákvæðum laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

Verklagsreglur um viðbrögð við kynbundinni og kynferðislegri áreitni og kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi:
www.hi.is/haskolinn/verklagsreglur_um_vidbrogd_vid_kynbundinni_og_kynferdislegri_areitni_og_kynbundnu_og_kynferdislegu_ofbeldi

Fagráð Háskóla Íslands:
www.hi.is/haskolinn/nefndir_haskolarads

Verklagsreglur um viðbrögð við einelti og öðru ofbeldi innan Háskóla Íslands:
www.hi.is/haskolinn/verklagsreglur_um_vidbrogd_vid_einelti_og_odru_ofbeldi_innan_haskola_islands