Ferill 1054. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Prentað upp.
Þingskjal 1726 — 1054. mál.
Skriflegt svar.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um samstarf eða sameiningu framhaldsskóla.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
1. Hver var aðdragandi og tímalína þess þegar ráðuneytið fól skólameisturum eftirfarandi skóla að hefja viðræður um aukið samstarf eða sameiningu skólanna:
a. Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskólans á Akureyri,
b. Kvennaskólans í Reykjavík og Menntaskólans við Sund,
c. Flensborgarskólans í Hafnarfirði og Tækniskólans,
d. Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Keilis – miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs?
2. Hverjar eru ástæður þess að framangreindir skólar urðu fyrir valinu?
3. Hvers vegna var skólameisturum annarra skóla ekki falið að hefja sambærilegar viðræður?
4. Hefur það verið til skoðunar að leggja Menntaskólann við Sund niður?
5. Stendur til að kanna möguleika á frekari sameiningu skóla á framhaldsskólastigi?
Skriflegt svar óskast.