Ferill 1059. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1731  —  1059. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um stöðu barna þegar foreldri fellur frá.

Frá Vilhjálmi Árnasyni.


     1.      Hvað líður framkvæmd 27. gr. a laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997, þar sem fjallað eru um skyldur heilbrigðisstarfsmanna gagnvart barni sem missir foreldri? Hefur verið sett reglugerð skv. 6. mgr. ákvæðisins? Ef ekki, hvenær má þess vænta að reglugerð verði sett?
     2.      Hafa verið settir skýrir verkferlar, t.d. í samráði við önnur ráðuneyti, sem tryggja frumkvæðisskyldu og framkvæmd laga nr. 50/2019 gagnvart börnum sem aðstandendum við fráfall foreldris? Ef ekki, hvenær má þess vænta að slíkir verkferlar verði settir?
     3.      Hve mörg börn hafa misst foreldri á árunum 2020–2022? Óskað er eftir sundurliðun eftir aldri og kyni barna og fjölskyldustærð. Einnig er óskað eftir sundurliðun eftir aldri og kyni foreldris sem deyr og dánarorsökum.


Skriflegt svar óskast.