Ferill 1060. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1732 — 1060. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um stöðu barna þegar foreldri fellur frá.
Frá Vilhjálmi Árnasyni.
1. Hver er staða á vinnslu reglugerða er varða rétt barna sem aðstandenda eftir fráfall foreldris og frumkvæðisskyldur hins opinbera gagnvart þeim, sbr. 7., 8. og 9. gr. laga nr. 50/2019?
2. Hafa verið settir skýrir verkferlar, t.d. í samráði við önnur ráðuneyti, sem tryggja frumkvæðisskyldu og framkvæmd laga nr. 50/2019 gagnvart börnum sem aðstandendum við fráfall foreldris? Ef svo er, hverjir eru þeir og ef ekki, hvenær má þess vænta að slíkir verkferlar verði settir?
Skriflegt svar óskast.