Ferill 932. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1773 — 932. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Hildi Sverrisdóttur um sjóði á vegum ráðuneytisins og stofnana þess.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hvaða sjóði starfrækja ráðuneytið og stofnanir þess?
2. Hver fer með umsýslu hvers sjóðs?
3. Hvaða lög og reglur gilda um útdeilingu fjármuna úr hverjum sjóði?
4. Hvað kostaði að starfrækja hvern sjóð árið 2022?
5. Hver var kostnaðurinn við að starfrækja hvern sjóð í hlutfalli við þá fjármuni sem var úthlutað úr sjóðnum árið 2022?
Hjá innviðaráðuneytinu starfar einn sjóður, Jöfnunarsjóður sveitarfélaga, sem starfar á grundvelli laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995. Svarið tekur ekki til sjóðsins en ítarlegar upplýsingar er að finna um framlög úr honum í eftirfarandi upplýsingagátt og eins má nálgast ársreikning sjóðsins á vefsíðunni ríkisreikningur.is
Undir ráðuneytið heyra sjö stofnanir, þ.e. Byggðastofnun, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, rannsóknarnefnd samgönguslysa, Samgöngustofa, Skipulagsstofnun, Vegagerðin og Þjóðskrá Íslands. Enginn sjóður er starfræktur hjá rannsóknarnefnd samgönguslysa og Þjóðskrá Íslands en svör fyrir aðrar stofnanir ráðuneytisins eru eftirfarandi:
Byggðastofnun.
1. og 2. Byggðastofnun annast veitingu flutningsjöfnunarstyrkja til framleiðenda og flutningsjöfnunarstyrkja vegna sölu olíuvara.
Einnig fer Byggðastofnun með umsýslu og yfirumsjón Brothættra byggða samkvæmt stefnumótandi byggðaáætlun og nýtur við það samstarfs landshlutasamtaka og sveitarfélaga, auk íbúa í brothættum byggðum. Einn þáttur í verkefninu er að veita styrki til frumkvæðis- og framfaraverkefna í brothættum byggðum.
Þá fer Byggðastofnun með umsýslu Byggðarannsóknasjóðs samkvæmt reglum ráðherra þar um.
3. Lög um svæðisbundna flutningsjöfnun, nr. 160/2011, gilda um útdeilingu flutningsjöfnunarstyrkja til framleiðenda og vegna sölu olíuvara. Jafnframt gildir reglugerð nr. 121/2019 um flutningsjöfnunarstyrki til framleiðenda og reglugerð nr. 890/2021 um flutningsjöfnunarstyrki vegna sölu olíuvara.
Byggðastofnun hefur sett reglur um meðferð styrkja til Brothættra byggða og fer verkefnisstjórn í hverju byggðarlagi með umsýsluna í samstarfi við Byggðastofnun og landshlutasamtökin samkvæmt samningum.
Ráðuneytið endurskoðaði og samþykkti hinn 6. nóv. 2020 gildandi reglur um Byggðarannsóknasjóð, einnig hefur stjórn Byggðarannsóknasjóðs sett sér starfsreglur.
4. Umsýslukostnaður Byggðastofnunar við flutningsjöfnunarstyrki er dreginn frá fjárveitingu hvers árs samkvæmt lögum nr. 160/2011. Umsýslukostnaður vegna flutningsjöfnunarstyrkja til framleiðenda var um 2,3 millj. kr. árið 2022 og tæplega 1 millj. kr. vegna sölu olíuvara.
Kostnaður við frumkvæðissjóð Brothættra byggða felst í vinnuframlagi starfsmanna Byggðastofnunar.
Enginn útlagður kostnaður var á árinu 2022 vegna Byggðarannsóknasjóðs þar sem ekki er greitt sérstaklega fyrir vinnu og fundarsetu.
5. Fjárveiting samkvæmt fjárlögum vegna flutningsjöfnunarstyrks til framleiðenda á árinu 2022 var 166,6 millj. kr. og var umsýslukostnaður 1,38% af heildarfjárveitingu. Til flutningsjöfnunarstyrks vegna sölu olíuvara á árinu 2022 runnu 175 millj. kr. úr byggðaáætlun og var umsýslukostnaður 0,56%.
Í Brothættum byggðum voru veittir styrkir að upphæð 59,5 millj. kr. á árinu 2022.
Styrkupphæðir úr Byggðarannsóknasjóði á árinu 2022 námu alls 11 millj. kr. Ekki er reiknaður hlutfallslegur kostnaður við sjóðinn og er vísað til svars við 4. tölul. í því sambandi.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
1. og 2. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) fer með umsýslu Fræðslusjóðs brunamála og Asks – mannvirkjarannsóknasjóðs.
3. Fræðslusjóður brunamála var stofnaður með lögum nr. 75/2000, um brunavarnir, sbr. 38. gr. laganna, og um starfsemi hans gildir reglugerð nr. 1600/2022. Á grundvelli framangreindra reglna hafa verið settar verklagsreglur um úthlutun styrkja.
Askur – mannvirkjarannsóknasjóður var stofnaður með lögum nr. 25/2021, um opinberan stuðning við nýsköpun. Sjóðurinn starfar eftir reglugerð nr. 1025/2021, um Ask – mannvirkjarannsóknasjóð. Á grundvelli reglugerðarinnar voru skilgreindar starfsreglur fyrir sjóðinn.
4. Kostnaður vegna umsýslu og úthlutunar úr Fræðslusjóði brunamála felst í vinnuframlagi starfsmanna HMS.
Kostnaður vegna úthlutunar úr Aski – mannvirkjarannsóknasjóði nam 5 millj. kr. árið 2022. Þar af voru um 3,5 millj. kr. sem fóru til einskiptisstofnkostnaðar en áætlað er að kostnaður við úthlutun nemi í kringum 2 millj. kr. á ári.
5. Fræðslusjóður brunamála úthlutaði 4 millj. kr. til 11 verkefna árið 2022.
Askur – mannvirkjarannsóknasjóður úthlutaði 95 millj. kr. til 39 verkefna á árinu 2022. Kostnaður vegna úthlutunar nam 5,2% af þeim fjármunum sem úthlutað var.
Samgöngustofa.
1. og 2. Föst fjárveiting til öryggisáætlunar sjófarenda er hluti af framlagi ríkissjóðs til Samgöngustofu. Af þeirri áætlun er árlega veitt, á grundvelli umsókna um styrki til hugvitsmanna, 2,5 millj. kr. til verkefna sem stuðla að auknu öryggi til sjós.
3. Samgöngustofa hefur sett verklagsreglur um styrkveitingar. Nefnd á vegum siglingaráðs fer yfir umsóknir og leggur til hvaða verkefni fá styrk og hversu háan styrk sem siglingaráð svo annaðhvort samþykkir eða hafnar.
4. Enginn sérgreindur kostnaður var vegna verkefnisins á árinu 2022.
5. Sama svar og við 4. tölul.
Skipulagsstofnun.
1. og 2. Skipulagsstofnun annast vörslu Skipulagssjóðs og greiðslur úr honum í samræmi við 17. gr. skipulagslaga.
3. Um Skipulagssjóð gilda ákvæði 17. gr. skipulagslaga. Sjóðnum er ætlað eftirfarandi hlutverk:
* Kostnaðarþátttaka við gerð aðal- og svæðisskipulags, sbr. 2., 3. og 6. tölul. 18. gr. skipulagslaga.
* Greiðsla kostnaðar við landsskipulagsstefnu, sbr. 1. tölul. 18. gr. skipulagslaga.
* Greiðsla kostnaðar við gerð strandsvæðisskipulags Austfjarða og Vestfjarða, sbr. 7. tölul. ákvæðis til bráðabirgða í skipulagslögum.
* Greiðsla kostnaðar við þróunarverkefni og rannsóknir á sviði skipulagsmála sem nýtast sveitarfélögunum við gerð skipulagsáætlana, sbr. 1. mgr. 17. gr.
4. og 5. Fjármunum úr sjóðnum er ráðstafað í þau verkefni sem getið er um í svari við 3. tölul. og í samræmi við heimildir fjárlaga. Enginn sérgreindur kostnaður er bókaður vegna starfrækslu sjóðsins. Sjóðurinn er óháður rekstri Skipulagsstofnunar.
Vegagerðin.
1. og 2. Vegagerðin starfrækir Hafnabótasjóð og Rannsóknasjóð Vegagerðarinnar
3. Hafnabótasjóður er rekinn á grundvelli 26. gr. hafnalaga, nr. 61/2003, og gildandi samgönguáætlunar.
Rannsóknasjóður Vegagerðarinnar er rekinn á grundvelli 23. gr. vegalaga, nr. 80/2007, um rannsóknir og þróun við vega- og gatnagerð. Fjárúthlutun er ákveðin í þingsályktun um samgönguáætlun.
4. Enginn kostnaður er vegna Hafnabótasjóðs.
Kostnaður við að starfrækja Rannsóknasjóð Vegagerðarinnar var 10,3 millj. kr.
5. Enginn kostnaður var vegna Hafnabótasjóðs en hlutfallið nam 6,9% vegna Rannsóknasjóðs Vegagerðarinnar.