Ferill 1023. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1778 — 1023. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Gísla Rafni Ólafssyni um póstnúmer Kjósarhrepps.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvers vegna er póstnúmer Kjósarhrepps 276 Mosfellsbær en ekki 276 Kjós eins og sveitarstjórn hefur ítrekað óskað eftir?
Samkvæmt 15. gr. laga um póstþjónustu, nr. 98/2019, ákvarðar Byggðastofnun landfræðileg mörk póstnúmera og gefur út póstnúmeraskrá. Ráðuneytinu er kunnugt um að Kjósarhreppur beindi erindi til Byggðastofnunar í mars sl. þar sem þess var óskað að póstnúmeri sveitarfélagsins yrði breytt í 276 Kjós. Ákvörðunum sem Byggðastofnun tekur á grundvelli laga nr. 98/2019, um póstþjónustu, má skv. 42. gr. laganna skjóta til úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála og koma því ekki til meðferðar í ráðuneytinu.