Ferill 904. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1822 — 904. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Jóhanni Páli Jóhannssyni um tilmæli nefndar um eftirlit með lögreglu.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hefur ríkislögreglustjóri brugðist við tilmælum nefndar um eftirlit með lögreglu sem fram koma í áliti nr. 44/2022 og m.a. var fjallað um í Stundinni 25. nóvember 2022? Ef svo er ekki, hvenær verður það gert og með hvaða hætti?
Við vinnslu fyrirspurnarinnar var óskað eftir upplýsingum frá embætti ríkislögreglustjóra og er svarið unnið í samstarfi við embættið.
Verklagsreglur og leiðbeiningar um leit að týndu fólki frá 24. maí 2004, sem gefnar voru út af embætti ríkislögreglustjóra, eru í endurskoðun. Sú vinna er í samræmi við hlutverk embættis ríkislögreglustjóra, sbr. einkum 10. gr. reglugerðar um starfsemi, hlutverk og ábyrgð embættis ríkislögreglustjóra nr. 325/2021. Embætti ríkislögreglustjóra vinnur jafnframt að samskiptastefnu lögreglu í samvinnu við alla lögreglustjóra þar sem m.a. er horft til þess að skýra og samræma vinnulag lögreglu í tengslum við samskipti við fjölmiðla.
Þá er vinna hafin við endurskoðun siðareglna lögreglu sem síðast voru endurútgefnar árið 2016 og drög að þeim liggja fyrir sem voru unnin í samvinnu við stéttarfélög starfsmanna lögreglu og undir handleiðslu sérfræðings frá Siðfræðistofnun Háskóla Íslands.