Ferill 1018. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1916 — 1018. mál.
Svar
háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn frá Bryndísi Haraldsdóttur um ráð, nefndir, stjórnir, starfshópa og stýrihópa.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvað voru á árinu 2022 stofnaðar margar nýjar nefndir, stjórnir, ráð, stýrihópar eða starfshópar sem heyra undir ráðuneytið og hver er áætlaður kostnaður vegna þeirra?
Engar nýjar nefndir, stjórnir, ráð, stýrihópar eða starfshópar voru stofnaðar á árinu 2022.
Til að vinna að nánu samráði við hagaðila, undirstofnanir og aðra sem hlut eiga að máli hefur háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið nýtt margs konar vinnustofur með góðum árangri án þess að greitt sé fyrir þátttöku í þeim.