Ferill 887. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1931 — 887. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Vilhjálmi Árnasyni um tilkynningar skiptastjóra vegna rökstudds gruns um refsivert athæfi þrotamanns eða annarra.
1. Hver er fjöldi tilkynninga sem héraðssaksóknara bárust á árunum 2016–2022 frá skiptastjórum í þrotabúum vegna rökstudds gruns um refsivert athæfi þrotamanns eða annarra skv. 84. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
Samkvæmt upplýsingum frá embætti héraðssaksóknara var fjöldi tilkynninga sem því embætti bárust árin 2016–2022 eftirfarandi:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
2. Hver er fjöldi þeirra tilkynninga sem bárust skv. 84. gr. laga nr. 21/1991 á árunum 2016–2022 sem leiddu til rannsóknar af hálfu ákæruvaldsins? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
Embætti héraðssaksóknara hefur ekki upplýsingar um hversu margar tilkynningar sem embættinu bárust umrætt tímabil leiddu til rannsóknar af hálfu lögreglu. Ástæða þess er sú að í kjölfar móttöku tilkynningar er hún yfirfarin af embætti héraðssaksóknara og eftir atvikum vísað til annarra lögregluembætta eða til skattrannsóknarstjóra ríkisins til rannsóknar eða áframhaldandi meðferðar, ef málið er talið heyra undir þau embætti. Samkvæmt upplýsingum frá héraðssaksóknara liggur þó fyrir að þau ár sem fyrirspurnin beinist að var stærstur hluti tilkynninga frá skiptastjóra framsendur til skattrannsóknarstjóra þar sem hin tilkynnta háttsemi laut að ætluðum brotum á skatta- og bókhaldslögum.
Þá liggja ekki fyrir upplýsingar um afdrif tilkynninganna enda eru skiptastjóratilkynningar ekki sérgreindar í kerfum héraðssaksóknara. Þau embætti sem fá tilkynningar framsendar frá héraðssaksóknara skrá mál í málaskrá lögreglu eða viðkomandi kerfi innan skattsins en sú skráning mun ekki auðkennd með þeim hætti að um skiptastjóraábendingar sé að ræða. Í þessu ljósi liggur ekki fyrir tölfræði eða nánari upplýsingar um afdrif þeirra tilkynninga sem vísað var til annarra lögregluembætta eða skattrannsóknarstjóra. Þó skal bent á að skattrannsóknarstjóri getur lokið málum á stjórnsýslustigi, til að mynda með beitingu álags, sem leiðir til þess að ekki er öllum málum frá því embætti vísað til refsimeðferðar hjá héraðssaksóknara að lokinni rannsókn.
3. Hversu langur tími líður, að jafnaði, á milli þess dags er tilkynning skv. 84. gr. laga nr. 21/1991 er móttekin af héraðssaksóknara og þar til rannsókn hefst á grundvelli tilkynningarinnar?
Embætti héraðssaksóknara hefur ekki upplýsingar um þann tíma sem að jafnaði líður frá því að tilkynning berst frá skiptastjóra og þar til rannsókn hefst enda er rannsókn slíkra mála ekki alltaf á forræði þess embættis. Þá eru mál sem hefjast með tilkynningu skiptastjóra ekki sérgreind í kerfum lögreglu eða skattsins og umræddar upplýsingar því ekki tiltækar.
4. Hver er fjöldi þeirra tilkynninga sem rannsakaðar voru á árunum 2016–2022 sem leiddu til ákæru? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
Svo sem fram kom í svari við fyrri liðum fyrirspurnarinnar geta mál sem stofnuð eru vegna tilkynninga skiptastjóra sætt rannsókn héraðssaksóknara, lögregluembætta um land allt eða skattrannsóknarstjóra. Málin eru ekki sérgreind í kerfum lögreglu og umræddar upplýsingar því ekki tiltækar.
5. Hversu margar ákærur sem lagðar voru fram árunum 2016–2022 leiddu til sakfellingar? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
Svo sem fram kom í svari við fyrri liðum fyrirspurnarinnar geta mál sem stofnuð eru vegna tilkynninga skiptastjóra sætt rannsókn héraðssaksóknara, lögregluembætta um land allt eða skattrannsóknarstjóra. Málin eru ekki sérgreind í kerfum lögreglu og umræddar upplýsingar því ekki tiltækar.