Ferill 637. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1943 — 637. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni um kostnað við Landspítala við Hringbraut.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver er áætlaður heildarkostnaður við áformaðar framkvæmdir við Landspítala við Hringbraut?
Heildaráætlun Nýja Landspítala (NLSH) um framkvæmdir við Landspítala var kynnt nýlega af hálfu ríkisstjórnarinnar og hljóðar upp á um 210 milljarða.
Allar kostnaðartölur frá og með 2022 eru á verðlagi í október 2022. Áfallinn kostnaður til og með 2021 er úr ársreikningum NLSH á verðlagi hvers árs. Áætlaður heildarkostnaður er sem hér segir:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Nánari umfjöllun um heildaráætlun um byggingu nýs Landspítala er að finna í rammagrein 5 á bls. 80 í fjármálaáætlun fyrir árin 2024–2028, sem fjármála- og efnahagsráðherra lagði fram á Alþingi 29. mars sl., og í skýrslu stýrihóps um verkefni nýs Landspítala sem gefin var út í mars sl.