Ferill 644. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1946  —  644. mál.




Svar


mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Indriða Inga Stefánssyni um þátttöku kynsegin fólks í íþróttum.


     1.      Hefur ráðherra kannað hvaða áhrif íþróttainnviðir hafa á möguleika kynsegin fólks til þátttöku í íþróttum? Ef svo er, hvað leiddi sú könnun í ljós?
    Næstum öll börn á Íslandi taka einhvern tíma þátt í skipulögðu íþróttastarfi. Samkvæmt íþróttalögum, nr. 64/1998, er meginmarkmið aðgerða ríkis og sveitarfélaga á sviði íþróttamála að stuðla að því að allir landsmenn eigi þess kost að iðka íþróttir við sem hagstæðust skilyrði. Samstarf ríkis og sveitarfélaga við hina frjálsu íþróttahreyfingu skal taka mið af gildi íþróttaiðkunar fyrir uppeldis- og forvarnastarf.
    Íþróttastarf á Íslandi er byggt á starfsemi frjálsra félagasamtaka sem starfa undir hatti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Sveitarfélög bera samkvæmt íþróttalögum ábyrgð á uppbyggingu aðstöðu til íþróttaiðkunar hvort sem er til nota í þágu skóla eða fyrir almenning.
    Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands heldur skráningarkerfi fyrir íþróttafélög þar sem safnað er upplýsingum um skráningar í félög einu sinni á ári.
    Einnig safnar Menntavísindasvið Háskóla Íslands gögnum um hagi og líðan barna og ungmenna í grunn- og framhaldsskólum. Í þeim gögnum er hægt að skoða virkni aldurshópa í frítíma þeirra og er hreyfing utan skólatíma eitt af því sem er kannað.
    Nýjustu upplýsingar frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands og Ungmennafélagi Íslands um íþróttaþátttöku með íþróttafélagi í 8.–10. bekk gefur ágætar upplýsingar um þátttöku þeirra sem skilgreina sig kynsegin í þessum aldurshópi. Tölurnar eru vegna skólaársins 2021 og var svarhlutfall um 75%. Í niðurstöðum má sjá að þátttaka drengja og stúlkna er svipuð eða um 62–64%. Fjöldi þeirra sem skilgreinir sig kynsegin í þessum aldurshópum er rúmlega 220 ungmenni. Af þeim æfa 16% fjórum sinnum í viku eða oftar og 18% einu sinni til þrisvar sinnum í viku. Hlutfall þeirra sem segjast nær aldrei stunda íþróttir með íþróttafélagi er 66%. Mjög misjafnt er á milli landsvæða hvernig þátttaka kynsegin fólks er.
    Þegar tölur úr Íslensku æskulýðsrannsókninni eru skoðaðar kemur ýmislegt áhugavert í ljós. Þar er hægt að skoða tölur um kynsegin skráningu frá 2018. Af þeim hópi sem skilgreinir sig kynsegin í rannsókninni (2%) segjast 72,6% æfa einu sinni í viku eða oftar, 63,2% að lágmarki þrisvar sinnum í viku og 14,8% á hverjum degi. Þeir sem segjast ekki stunda reglulegar æfingar eru í þessum hópi 14,8%.

     2.      Til hvaða aðgerða hefur ráðherra gripið til að auka þátttöku kynsegin fólks í íþróttum? Eru einhverjar aðgerðir í undirbúningi í ráðuneytinu sem lúta að því?
    Mennta- og barnamálaráðuneytið vinnur nú að innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Lögin voru samþykkt á Alþingi í júní 2021. Reiknað er með að innleiðingartímabilið sé þrjú til fimm ár. Markmið laganna er að allir þeir sem hafa með höndum almenna þjónustu í þágu farsældar barna tryggi að þjónustan sé aðgengileg öllum börnum á því stigi sem viðkomandi þjónusta er skilgreind. Íþróttastarf samkvæmt þessum lögum er almennt skilgreint sem fyrsta stigs þjónusta.
    Stöðugt samtal er milli mennta- og barnamálaráðuneytisins og íþróttahreyfingarinnar um hvernig aðgengi allra barna að íþróttastarfi verði sem best tryggt. Benda má á nýtt fræðsluefni sem Íþrótta- og Ólympíusambandið gaf út í samstarfi við Samtökin 78, Trans Ísland og Trans vini. Efninu er ætlað að vera leiðbeinandi vegna þátttöku trans barna að tólf ára aldri í íþróttastarfi.