Ferill 194. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 195 — 194. mál.
Fyrirspurn
til innviðaráðherra um skipun starfshóps um skráningu án tilgreinds heimilisfangs.
Frá Gísla Rafni Ólafssyni.
1. Hverjir skipa sérstakan starfshóp sem innviðaráðherra skipaði til að skoða búsetu þeirra sem eru skráðir með ótilgreint heimilisfang skv. 4. gr. laga um lögheimili og aðsetur, nr. 80/2018.
2. Hvers vegna eru engir fulltrúar í starfshópnum frá samtökum þeirra sem skráðir eru með ótilgreint heimilisfang í þjóðskrá?
Skriflegt svar óskast.