Ferill 1067. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1953  —  1067. mál.




Svar


matvælaráðherra við fyrirspurn frá Sigurjóni Þórðarsyni um heimavigtun og endurvigtun sjávarafla.

     1.      Hefur ráðuneytið tekið til greina úrbótatillögur sem fram koma í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá 2019 um eftirlit Fiskistofu, svo sem um endurbætur á fyrirkomulagi endurvigtunar og heimavigtunar sjávarafla?
    Í september 2018 var gerð samstarfsyfirlýsing um framkvæmd vigtunar og eftirlits með löndun sjávarafla milli Hafnasambands Íslands og Fiskistofu. Þá hefur verið starfandi samstarfsnefnd Hafnasambands og Fiskistofu um málið. Ráðuneytið telur rétt að leggja þurfi meiri áherslu á vinnu samstarfsnefndarinnar. Rétt er að taka fram að um er að ræða samstarf á milli stjórnsýslustiga, þar sem hafnir og starfsmenn hafna heyra undir sveitarstjórnarstigið.
Nú á sér stað stefnumótun um sjávarútveg í verkefninu Auðlindin okkar. Í bráðabirgðatillögu 12 kemur fram að samræma eigi vigtun afla og gera ferlið skilvirkara. Nýtt verði stafræn nútímatækni í stað útprentaðra gagna og tvískráningar. Þá verði tillögur til breytinga á lögum og reglum útfærðar í samstarfi við fiskmarkaði, hafnir og aðila sem stunda löndun.
    Þá hefur Ísland skrifað undir samkomulag, „Stand Alone Agreement“, við Bretland, Evrópusambandið, Færeyjar, Grænland og Noreg um samræmdar vigtunar- og eftirlitsreglur uppsjávarafla. Samkomulagið kveður á um stórbætta framkvæmd vigtunar og eftirlits með vigtun á uppsjávarafla. Vinna er í gangi í ráðuneytinu við að uppfæra reglugerðir til samræmis við samkomulagið. Verða reglurnar innleiddar í skrefum og tekur samkomulagið gildi 1. janúar 2026.
    Einnig bendir ráðuneytið á að samkvæmt tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2024–2028 verður verulega auknu fé ráðstafað í málaflokk hafrannsókna og fiskveiðieftirlits.

     2.      Telur ráðherra að fiskvinnslur sem hafa endurvigtunar- og/eða heimavigtunarleyfi hafi samkeppnisforskot á aðrar fiskvinnslur sem hafa ekki slík leyfi?
    Endurvigtunarleyfi voru 85 við lok síðasta árs á landinu öllu. Allar fiskvinnslur geta fengið frá Fiskistofu leyfi til endurvigtunar afla uppfylli þær kröfur laga og reglugerða um slík leyfi, aðbúnað til vigtunar, löggildingu voga og vigtarmanna o.s.frv.
    Heimavigtunarleyfi eru fá, átta talsins, og eingöngu veitt þeim aðilum er taka á móti uppsjávarafla. Eru slíkar vinnslur með leyfi til bæði manneldis- og fiskimjölsvinnslu. Strangari skilyrði fylgja leyfi til heimavigtunar og er eftirlit með þeirri vigtun meira.
    Hjá Fiskistofu er nú til skoðunar að beintengja vigtun leyfishafa við gagnagrunn Fiskistofu og gera að skilyrði fyrir leyfum til endurvigtunar. Stofnunin hefur undanfarin ár birt á vefsíðu sinni frávik ísprósentu sem fram koma við yfirstöðu eftirlitsmanna við endurvigtun og heimavigtun í samanburði við uppgefna ísprósentu þegar ekki er staðið yfir og hefur sú birting skilað árangri.

     3.      Hversu margir aðilar eru með heimavigtunarleyfi og hvað hafa umræddir aðilar yfir miklum aflaheimildum að ráða?
    Átta aðilar hafa heimavigtunarleyfi, sjö af þeim fyrirtækjum hafa leyfi til heimavigtunar á uppsjávarfiski og einn aðili hefur heimavigtunarleyfi á þara og þangi.

    Úthlutaðar aflaheimildir útgerða með heimavigtunarleyfi 2022/2023:
          *      Brim: 88.632 tonn úr deilistofnun árið 2023, 44.891 tonn af uppsjávartegundum og 40.404 tonn af botnfisktegundum fiskveiðiárið 2022/2023.
          *      Eskja: 71.391 tonn úr deilistofnun árið 2023, 27.474 tonn af uppsjávartegundum og 3.790 tonn af botnfisktegundum fiskveiðiárið 2022/2023.
          *      Ísfélag Vestmannaeyja: 28.808 tonn úr deilistofnun árið 2023, 70.586 tonn af uppsjávartegundum og 8.629 tonn af botnfisktegundum fiskveiðiárið 2022/2023.
          *      Loðnuvinnslan hf.: 18.186 tonn úr deilistofnun árið 2023, 7.546 tonn af uppsjávartegundum og 5.095 tonn af botnfisktegundum fiskveiðiárið 2022/2023.
          *      Síldarvinnslan hf.: 96.265 tonn úr deilistofnun árið 2023, 68.121 tonn af uppsjávartegundum og 12.103 tonn af botnfisktegundum fiskveiðiárið 2022/2023.
          *      Skinney – Þinganes hf.: 9.013 tonn úr deilistofnun árið 2023, 37.277 tonn af uppsjávartegundum og 13.899 tonn af botnfisktegundum fiskveiðiárið 2022/2023.
          *      Vinnslustöðin hf.: 20.885 tonn úr deilistofnun árið 2023, 40.356 tonn af uppsjávartegundum og 14.638 tonn af botnfisktegundum fiskveiðiárið 2022/2023.
          *      Þörungaverksmiðjan: Engar aflaheimildir.

     4.      Telur ráðherra koma til greina að leggja af heimavigtun og endurvigtun, þannig að vigtun sjávarafla fari ávallt fram með sama hætti? Ef ekki, hverjar eru röksemdirnar fyrir því?
    Heimavigtun á uppsjávarafla er heimiluð þar sem gríðarmiklu magni er dælt inn í bræðslu eða vinnslu á stuttum tíma og því um að ræða heppilegustu aðferðina til þess að ákvarða magn upp úr uppsjávarskipi sem og að viðhalda sem bestum gæðum aflans. Heimavigtunarleyfishafar eru undir eftirliti bæði Fiskistofu og hafnaryfirvalda, sem bera ákveðnar eftirlitsskyldur með heimavigtunarleyfishöfum auk þess sem rík krafa er gerð um innra eftirlit hjá slíkum leyfishöfum. Ísland skrifaði nýverið undir samning um samhæfingu reglna og eftirlits vegna veiða á uppsjávarfiski í NA-Atlantshafi og mun sá samningur taka gildi 1. janúar 2026. Þegar samningurinn verður fullgildur verður allur uppsjávarafli vigtaður með samræmdum hætti á landinu og í því ástandi sem hann er við löndun.
    Endurvigtun afla er heimil sömuleiðis til að stuðla að betri gæðum hans. Með aðferðinni er vigtunarleyfishafa heimilt að draga frá ís við vigtun sem notaður er til kælingar á afla. Dregið hefur úr endurvigtun afla með tilkomu skipa með ofurkælingu og er afli þeirra endanlega veginn á hafnarvog. Endurvigtun á botnfiskafla minnkaði um 46.500 tonn almanaksárið 2022 vegna ofurkælingar. Ráðuneytið hefur nýverið styrkt Fiskistofu til nýsmíði á löndunar- og eftirlitskerfi sem ætlað er að stórbæta eftirlit stofnunarinnar.