Ferill 1082. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1961  —  1082. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Indriða Inga Stefánssyni um netöryggi.

    
    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvaða samræmdu reglur og viðmið gilda í ráðuneytinu um lykilorð? Hvaða ferlar eru til staðar til að endurskoða þau og bregðast við ef upp kemur gagnaleki eða aðrar hættur varðandi netöryggi?

    Um lykilorð starfsfólks utanríkisráðuneytisins gildir eftirfarandi:
    Tryggt er að lykilorð séu endurnýjuð reglulega og uppfylli fyrirfram ákveðin skilyrði. Sjálfvirkt ferli minnir starfsfólk á aldur lykilorðs og lokar á aðgang sé lykilorði ekki breytt innan tiltekins tímaramma. Að auki er tveggja þátta auðkenningar krafist þar sem við á.
    Virkja má sjálfvirkt ferli til að loka aðgangi og kalla fram endurnýjun tiltekinna eða allra lykilorða ef þörf krefur.
    Í þágu upplýsingaöryggis í ráðuneytinu er jafnframt leitast við að veita ekki utanaðkomandi aðilum upplýsingar um framkvæmdina við stýringu lykilorða.

    Alls fór 1 klst. í að taka þetta svar saman.