Ferill 193. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 304 — 193. mál.
Svar
mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um stöðu fyrsta skólastigs skólakerfisins.
1. Hvert er hlutfall stöðugilda við kennslu, umönnun og uppeldi barna í leikskólum hérlendis sem teljast til stöðugilda kennara, sbr. 2. mgr. 14. gr. laga um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, nr. 95/2019? Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum.
Í eftirfarandi töflu eru upplýsingar um hlutfall stöðugilda sem teljast til stöðugilda kennara 1. desember 2020 sundurliðað eftir sveitarfélögum:
Hlutfall stöðugilda kennara, af starfsmönnum við uppeldi og menntun, í leikskólum 1. desember 2020.
| Svfnr. | Sveitarfélag | Stöðugildi – hlutfall |
| 0000 | Reykjavíkurborg | 22,2 |
| 1000 | Kópavogsbær | 27,6 |
| 1100 | Seltjarnarneskaupstaður | 33,5 |
| 1300 | Garðabær | 21,9 |
| 1400 | Hafnarfjarðarkaupstaður | 28,7 |
| 1604 | Mosfellsbær | 22,4 |
| 2000 | Reykjanesbær | 27,0 |
| 2300 | Grindavíkurbær | 19,7 |
| 2505 | Suðurnesjabær | 14,8 |
| 2506 | Sveitarfélagið Vogar | 31,0 |
| 3000 | Akraneskaupstaður | 38,8 |
| 3511 | Hvalfjarðarsveit | 35,1 |
| 3609 | Borgarbyggð | 33,9 |
| 3709 | Grundarfjarðarbær | 14,0 |
| 3711 | Stykkishólmsbær | 14,5 |
| 3713 | Eyja- og Miklaholtshreppur | 0,0 |
| 3714 | Snæfellsbær | 27,5 |
| 3811 | Dalabyggð | 6,8 |
| 4100 | Bolungarvíkurkaupstaður | 28,7 |
| 4200 | Isafjarðarbær | 17,2 |
| 4502 | Reykhólahreppur | 26,7 |
| 4604 | Tálknafjarðarhreppur | 29,6 |
| 4607 | Vesturbyggð | 10,6 |
| 4803 | Súðavíkurhreppur | 0,0 |
| 4911 | Strandabyggð | 0,0 |
| 5200 | Sveitarfélagið Skagafjörður | 33,2 |
| 5508 | Húnaþing vestra | 0,3 |
| 5604 | Blönduósbær | 16,3 |
| 5609 | Sveitarfélagið Skagaströnd | 16,7 |
| 5612 | Húnavatnshreppur | 39,6 |
| 6000 | Akureyrarbær | 51,7 |
| 6100 | Norðurþing | 19,7 |
| 6250 | Fjallabyggð | 18,9 |
| 6400 | Dalvíkurbyggð | 33,0 |
| 6513 | Eyjafjarðasveit | 13,0 |
| 6515 | Hörgársveit | 57,1 |
| 6601 | Svalbarðsstrandarhreppur | 22,5 |
| 6602 | Grýtubakkahreppur | 53,1 |
| 6607 | Skútustaðahreppur | 16,9 |
| 6612 | Þingeyjarsveit | 19,8 |
| 6709 | Langanesbyggð | 10,6 |
| 7300 | Fjarðabyggð | 17,5 |
| 7400 | Múlaþing | 27,2 |
| 7502 | Vopnafjarðarhreppur | 45,1 |
| 7708 | Sveitarfélagið Hornafjörður | 14,5 |
| 8000 | Vestmannaeyjabær | 32,1 |
| 8200 | Sveitarfélagið Árborg | 19,8 |
| 8508 | Mýrdalshreppur | 12,9 |
| 8509 | Skaftárhreppur | 18,0 |
| 8613 | Rangárþing eystra | 27,0 |
| 8614 | Rangárþing ytra | 20,2 |
| 8710 | Hrunamannahreppur | 17,4 |
| 8716 | Hveragerðisbær | 20,5 |
| 8717 | Sveitarfélagið Ölfus | 23,0 |
| 8719 | Grímsnes- og Grafningshreppur | 18,1 |
| 8720 | Skeiða- og Gnúpverjahreppur | 64,5 |
| 8721 | Bláskógabyggð | 18,6 |
| 8722 | Flóahreppur | 33,6 |
2. Hver er meðalaldur barna við innritun á fyrsta skólastigi skólakerfisins? Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum.
Hagstofa Íslands aflar ekki upplýsinga um meðalaldur barna við innritun í leikskóla og að svo stöddu liggja ekki fyrir upplýsingar um það í mennta- og barnamálaráðuneyti.
3. Hver er meðalaldur barna þegar þau hefja skólagöngu á fyrsta skólastigi skólakerfisins? Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum.
Hagstofa Íslands aflar ekki upplýsinga um meðalaldur barna við innritun í leikskóla og að svo stöddu liggja ekki fyrir upplýsingar um það í mennta- og barnamálaráðuneyti.