Ferill 302. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 307  —  302. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og barnamálaráðherra um eftirlit með fjármálum einkarekinna leikskóla.

Frá Steinunni Þóru Árnadóttur.


     1.      Hvernig er eftirliti með fjármálum einkarekinna leikskóla háttað?
     2.      Hefur ráðuneytið brugðist við því ef einkareknir leikskólar skila ekki ársreikningum í samræmi við lög um ársreikninga, nr. 3/2006?
     3.      Hefur ráðuneytið brugðist við því ef einkareknir leikskólar greiða út arð í trássi við lög um arðgreiðslur? Ef svo er, hvernig?