Ferill 380. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 482 — 380. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um ofbeldi í nánum samböndum og kyn.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvernig greinast upplýsingar þær sem fram koma í svari ráðherra í 199. máli (þskj. 357), um tengsl í manndrápsmálum á tímabilinu 1999–2020, eftir kyni geranda og þolanda?
Við vinnslu fyrirspurnarinnar var óskað eftir upplýsingum frá embætti ríkislögreglustjóra og er svarið unnið í samráði við embættið.
Í eftirfarandi tölfræði má finna upplýsingar um kyn gerenda og þolenda eftir tegund tengsla í málum sem tengjast manndrápi á tímabilinu 1999–2020. Samkvæmt svari ríkislögreglustjóra þá er komið á framfæri einni leiðréttingu við þá tölfræði sem birtist í svari dómsmálaráðherra sem vísað er til í fyrirspurninni. Árið 2002 voru fjögur manndráp og árið 2003 voru engin manndráp.
Hlutfall gerenda og þolenda eftir kyni:
| Gerandi | Þolandi | |
| Kk. | 85% | 59% |
| Kvk. | 15% | 41% |
Kyn gerenda og þolenda greint eftir tegund tengsla:
| Kyn | Gerandi | Þolandi | Gerandi (%) | Þolandi (%) | |
| Kunningjar/vinir | Kk. | 20 | 18 | 95% | 75% |
| Kunningjar/vinir | Kvk. | 1 | 6 | 5% | 25% |
| Maki/fyrrum maki | Kk. | 7 | 2 | 78% | 22% |
| Maki/fyrrum maki | Kvk. | 2 | 7 | 22% | 78% |
| Ókunnugur | Kk. | 5 | 3 | 100% | 60% |
| Ókunnug | Kvk. | 0 | 2 | 0% | 40% |
| Fjölskyldutengsl | Kk. | 3 | 3 | 50% | 50% |
| Fjölskyldutengsl | Kvk. | 3 | 3 | 50% | 50% |