Ferill 335. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 563 — 335. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Guðrúnu Hafsteinsdóttur um niðurgreiðslu Sjúkratrygginga Íslands á aðgerðum vegna skarðs í vör.
1. Hve háa upphæð hafa Sjúkratryggingar Íslands greitt vegna aðgerða á skarði í vör hjá börnum frá 1. janúar 2020?
Aðgerðir vegna skarðs í vör hjá börnum eru framkvæmdar á sjúkrahúsum og eru því ekki greiddar af Sjúkratryggingum Íslands. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítala hafa hafa alls 29 börn farið í 42 skurðaðgerðir vegna skarðs í vör frá 1. janúar 2020 til loka september 2022. Um er að ræða aðgerðir innan lýtalækninga. Hér er ekki um að ræða aðgerðir hjá kjálkaskurðlæknum sem tengjast tannviðgerðum/-réttingum. Hér í töflum má sjá heildarkostnað við innlögn og skurðaðgerð umræddra barna fyrir hvert ár á verðlagi hvers árs ásamt komum á göngudeild. Alls er kostnaðurinn um 58,5 milljónir kr. á verðlagi hvers árs.
Kostnaður vegna skarðs í vör, legur og aðgerðir ásamt komum á göngudeild til undirbúnings og/eða eftirlits eftir aðgerð:
| Innlögn á legudeild: | Komur á göngudeild: | |||||
| Tímabil: janúar 2020 – sept. 2022 | Tímabil: janúar 2020 – sept. 2022 | |||||
| Ár útskriftar | Fjöldi lega | Kostnaður í heild | Ár útskriftar | Fjöldi lega | Kostnaður í heild | |
| 2020 | 17 | 24.945.826 | 2020 | 22 | 397.160 | |
| 2021 | 16 | 19.560.517 | 2021 | 32 | 383.866 | |
| 2022 | 9 | 12.898.777 | 2022 | 15 | 270.591 | |
| Samtals | 42 | 57.405.120 | Samtals | 69 | 1.051.617 | |
| Kostnaður úr kostnaðarkerfi Landspítala | Kostnaður úr kostnaðarkerfi Landspítala | |||||
| Kostnaður á verðlagi hvers árs | Kostnaður á verðlagi hvers árs | |||||
2. Hafa Sjúkratryggingar Íslands hafnað niðurgreiðslu vegna einhverra aðgerða á skarði í vör hjá börnum frá 1. janúar 2020?
Hér er um aðgerðir og meðferð á Landspítala að ræða og því kemur ekki til niðurgreiðslu af hálfu Sjúkratrygginga Íslands.
3. Hve mörg börn biðu 1. september 2022 eftir aðgerð vegna skarðs í vör?
4. Hve langur er meðalbiðtími barna eftir aðgerð vegna skarðs í vör?
Hinn 1. september 2022 voru 4 börn á biðlista eftir aðgerð vegna skarðs í vör. Meðalbiðtími þeirra barna sem fóru í aðgerð á tímabilinu 1. jan 2022 – 31. ágúst 2022 var 105 dagar (miðgildið 114 dagar) eða 15 vikur (miðgildi 16,3 vikur).
Það skal tekið fram að orðið biðlisti getur verið villandi í þessu tilviki og gæti gefið í skyn að viðkomandi barn sé á lista því það komist ekki að hjá spítalanum og verði að bíða eftir aðgerð. Barn sem sett er á biðlista er þar ekki síst til að halda því ferli sem lýst er hér á eftir, þar sem meðferðin er í áföngum, þ.e. röð aðgerða til lokunar skarðs sem hver um sig hefur sinn tímaramma, sbr. meðferðaráætlun.
Til upplýsingar fylgir hér meðferðaráætlun Landspítala fyrir börn með skarð í vör.
Meðferðaráætlun:
– Draga saman skarð með plástrum (Dynacleft) frá fæðingu eða aðgerð til bráðabirgðalokunar („Lip-adhesion“: 2–8 v aldur).
– Aðgerð til lokunar á vör og harða/fremri gómi: 3–6 mánaða aldur (líkamsþyngd 5 kg eða meira).
– Aðgerð til lokunar á mjúka gómi/aftari hluta góms: 6–18 mánaða aldur.
– Bein flutt frá mjöðm í skarð: u.þ.b. 8–10 ára (fullorðins framtennur komnar niður).
– 13–16 ára: Útlitsgerðir/viðgerð á örum.
– 16–20 ára: Kjálka- og/eða nefaðgerðir.
– Samhliða er margþætt meðferð tannlækna, talmeinafræðinga, HNE-lækna.