Ferill 104. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 104 — 104. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um almannatryggingar (mánaðarlegt yfirlit).
Flm.: Guðmundur Ingi Kristinsson, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Eyjólfur Ármannsson,
Inga Sæland, Jakob Frímann Magnússon, Tómas A. Tómasson, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir.
1. gr.
2. gr.
Tryggingastofnun skal senda greiðsluþega með rafrænum hætti, eða skriflegum ef þess er óskað, yfirlit þar sem fram koma forsendur útreiknings ofgreiðslu eða vangreiðslu. Í yfirlitinu skal tilgreina áhrif of- eða vanáætlaðra tekna á einstaka réttindaflokka.
3. gr.
Greinargerð.
Frumvarp þetta var áður lagt fram á 154. löggjafarþingi ( 527. mál) en náði ekki fram að ganga og er nú lagt fram að nýju óbreytt.
Lífeyrir almannatrygginga er greiddur út mánaðarlega af hálfu Tryggingastofnunar ríkisins til lífeyrisþega. Tryggingastofnun annast einnig greiðslu þeirra réttinda sem fjallað er um í lögum um félagslega aðstoð. Öryrkjar, endurhæfingarlífeyrisþegar og ellilífeyrisþegar geta átt rétt á ýmsum tegundum greiðslna og gilda mismunandi reglur um tekjuskerðingar fyrir hvern og einn réttindaflokk. Þetta veldur því að erfitt getur verið fyrir lífeyrisþega að átta sig á því hvers vegna réttindi hans skerðast. Tryggingastofnun sendir aðeins út árlega tekjuáætlun, en lífeyrisþegar geta óskað sérstaklega eftir því að fá aðgang að mánaðarlegu yfirliti í gegnum mínar síður á tr.is. Þar kemur ekki fram annað en mánaðarleg útgreiðsla fyrir hvern bótaflokk að teknu tilliti til frádráttar vegna staðgreiðslu skatta. Þá sendir Tryggingastofnun til lífeyrisþega um mitt ár upplýsingar um endurreiknaða fjárhæð greiðslna ársins sem leið, að teknu tilliti til upplýsinga sem fram koma í skattskýrslum lífeyrisþega. Í því yfirliti þyrfti einnig að færa inn nánari upplýsingar um einstaka réttindaflokka og tegundir skerðingarreglna.
Það er mikilvægt að lífeyrisþegar geti fengið upplýsingar um áhrif einstakra skerðingarreglna á réttindi sín, hvort sem það eru skerðingar á tekjutryggingu vegna lífeyristekna eða skerðingar á örorkulífeyri vegna atvinnutekna, eða áhrif á önnur réttindi, svo sem ýmis réttindi sem Tryggingastofnun greiðir út á grundvelli laga um félagslega aðstoð. Því er lagt til að framvegis skuli Tryggingastofnun ríkisins senda greiðsluþegum almannatrygginga mánaðarlegt yfirlit yfir greiðslur þar sem fram koma forsendur útreiknings greiðslna þess mánaðar, svo sem skerðingar á einstökum réttindaflokkum og á grundvelli hvaða skerðingarreglna réttindin skerðast.
Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Um 2. gr.
Um 3. gr.