Ferill 225. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 226 — 225. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um virðisaukaskatt vegna vinnu á verkstað.
Frá Andrési Inga Jónssyni.
1. Hversu mikið hefur innheimst af virðisaukaskatti á mánuði undanfarin fimm ár í þeim tilvikum þegar óskað hefur verið endurgreiðslu af greiddum virðisaukaskatti af vinnu á verkstað vegna nýbygginga, endurbóta og viðhalds, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um virðisaukaskatt, nr. 50/1988?
2. Hvernig hefur fjárhæð þessara tekna ríkisins þróast eftir því sem endurgreiðsluhlutfall hefur lækkað?
Skriflegt svar óskast.
Greinargerð.