Ferill 237. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 238 — 237. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um að banna auglýsingar á jarðefnaeldsneyti.
Flm.: Eva Dögg Davíðsdóttir, Steinunn Þóra Árnadóttir, Orri Páll Jóhannsson, Jódís Skúladóttir, Andrés Ingi Jónsson.
Alþingi ályktar að fela menningar- og viðskiptaráðherra að undirbúa og leggja fram frumvarp sem bannar auglýsingar á jarðefnaeldsneyti og vörum sem tengjast framleiðslu og notkun slíkra orkugjafa. Bannið taki til allra tegunda auglýsinga á jarðefnaeldsneyti ásamt vörum og þjónustu sem notast við slíka orkugjafa í miklum mæli.
Greinargerð.
Loftslagsváin krefst tafarlausra aðgerða til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og hraða orkuskiptum yfir í sjálfbæra orkugjafa. Á undanförnum árum hefur António Guterres, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, ítrekað hvatt ríki til að banna auglýsingar olíufyrirtækja sem og hvatt fjölmiðla og samfélagsmiðlafyrirtæki til að hætta að birta auglýsingar á jarðefnaeldsneyti.
Markaðssetning jarðefnaeldsneytis er ekki ósvipuð því sem tóbaksiðnaðurinn stundaði svo áratugum skipti – að hylma yfir skaðsemi vöru sem veldur óbætanlegu tjóni. Lönd víðs vegar um heim hafa bannað auglýsingar á tóbaki með þeim rökum að slíkar auglýsingar ýti undir neyslu sem hefur alvarlegar heilsufarslegar afleiðingar. Jarðefnaeldsneyti er um þessar mundir ein helsta ógnin við loftslag jarðar. Hlýnun jarðar og loftslagsbreytingar hafa nú þegar neikvæð áhrif á heilsufar fólks um allan heim. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) reiknar með 250.000 viðbótardauðsföllum árlega frá og með árinu 2030 af völdum hamfarahlýnunar. Auglýsingar á jarðefnaeldsneyti stuðla að því að viðhalda og jafnvel auka notkun á þessum skaðlegu orkugjöfum með tilheyrandi afleiðingum.
Því er ekki aðeins réttlætanlegt heldur nauðsynlegt að beita svipaðri aðferðafræði og beitt var gegn tóbaksnotkun til að draga úr olíunotkun: að banna með lögum markaðssetningu á vörum sem hafa sannanleg, skaðleg áhrif á heilsu og umhverfi. Bann við auglýsingum á jarðefnaeldsneyti væri þannig til þess fallið að vinna gegn normalíseringu á neyslu jarðefnaeldsneytis og annarrar kolefnislosandi vöru og væri þannig liður í þeirri hugarfarsbreytingu sem er grundvöllur að kolefnishlutlausri og lífvænlegri framtíð.
Því er það mat tillöguhöfunda að ekki dugi að leggja eingöngu bann við auglýsingum olíufyrirtækjanna sjálfra heldur yrði bannið einnig að ná til þeirrar vöru og þjónustu sem nýtir þessa orkugjafa í miklum mæli, t.d. bíla, flugferða og ferða með skemmtiferðaskipum. Til auglýsinga teljast birtingar í opinberu rými, þ.m.t. á skiltum, auglýsingar í ljósvakamiðlum, prentmiðlum og á net- og samfélagsmiðlum.
Bönn við auglýsingum sem tengjast jarðefnaeldsneyti eiga sér nú þegar fordæmi, Frakkland samþykkti til að mynda slíkt bann árið 2022. Borgir á borð við Amsterdam, Edinborg og Sydney hafa einnig innleitt valkvæðar viðmiðunarreglur um auglýsingar af þessu tagi. Árið 2023 varð Haag fyrsta borgin í heimi til að samþykkja bindandi löggjöf sem bannar auglýsingar á vörum og þjónustu sem tengjast jarðefnaeldsneyti og annarri kolefnislosandi starfsemi, svo sem skemmtiferðaskipum og flugferðum.
Bann við tóbaksauglýsingum hefur fest sig í sessi hér á landi, enda voru lög þess efnis samþykkt árið 1971 ( lög um verslun ríkisins með áfengi, tóbak og lyf, nr. 59/1971). Á evrópskum vettvangi eru rúm 30 ár síðan tilskipun um bann við tóbaksauglýsingum tók gildi. Bann við auglýsingum á jarðefnaeldsneyti myndi vinna að sama markmiði; að vernda heilsu almennings, umhverfið og neytendur ásamt því að draga úr áhrifum stórfyrirtækja á stefnumótun í loftslagsmálum. Slík bönn hafa reynst árangursrík í að breyta neysluhegðun og bæta lýðheilsu, líkt og bann við tóbaksauglýsingum hefur sýnt fram á. Það er því talið lögfræðilega réttmætt að innleiða slíkt bann í samhengi jarðefnaeldsneytis.