Ferill 239. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 242  —  239. mál.




Fyrirspurn


til matvælaráðherra um byggðakvóta.

Frá Sigurjóni Þórðarsyni.


    Hvað fengu þær 12 útgerðir sem hafa yfir mestu samanlögðu aflamarki og krókaaflamarki í bolfiski að ráða í sinn hlut af:
     a.      almennum byggðakvóta,
     b.      sértækum byggðakvóta Byggðastofnunar og
     c.      rækju og skelbótum, á síðasta fiskveiðiári?
    Svar óskast sundurliðað eftir framangreindum stafliðum. Óskað er upplýsinga um hve hátt hlutfall umræddar útgerðir fá samanlagt af 5,3% potti, sbr. 3. mgr. 8. gr. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006.


Skriflegt svar óskast.