Ferill 246. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 249  —  246. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á skipulagslögum, nr. 123/2010 (breytingar á svæðisskipulagi).

Flm.: Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Jón Gunnarsson, Óli Björn Kárason, Diljá Mist Einarsdóttir, Vilhjálmur Árnason, Njáll Trausti Friðbertsson, Teitur Björn Einarsson.


1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 22. gr. laganna:
     a.      Orðin „Sveitarfélagið Álftanes“ í 2. málsl. falla brott.
     b.      Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Breytingar á svæðisskipulagi samkvæmt þessari málsgrein eru háðar samþykki aukins meiri hluta hlutaðeigandi sveitarstjórna.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Í VI. kafla skipulagslaga, nr. 123/2010, er að finna heimild tveggja eða fleiri sveitarfélaga til að leggja fram sérstakt svæðisskipulag, þ.e. sameiginlega skipulagsáætlun. Í slíku skipulagi er sett fram sameiginleg stefna hlutaðeigandi sveitarfélaga um byggðaþróun og landnotkun vegna sameiginlegra hagsmuna þeirra.
    Í 4. mgr. 22. gr. laganna segir að svæðisskipulag sé háð samþykki allra hlutaðeigandi sveitarstjórna, en það sama á við um breytingar á svæðisskipulagi, sbr. 27. gr. Af því leiðir að eitt sveitarfélag hefur í reynd neitunarvald gagnvart öllum öðrum sveitarfélögum sem aðild eiga að svæðisskipulagi.
    Í 2. mgr. 22. gr. er að finna sérákvæði um svæðisskipulag sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, en þar er kveðið á um þá skyldu þeirra að gera með sér svæðisskipulag, ólíkt því sem gildir um önnur sveitarfélög. Af því leiðir að sú staða getur og hefur komið upp að eitt sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu getur bundið hendur allra hinna sem vilja gera breytingar á gildandi svæðisskipulagi, sem þeim er öllum skylt að eiga aðild að hvort sem það hugnast þeim eður ei. Svæðisskipulag tekur eðli máls samkvæmt til ákveðins tímabils sem telur jafnvel áratugi og er byggt á tilteknum forsendum hverju sinni. Þær forsendur geta hins vegar hæglega brostið og verða sveitarfélög að eiga raunhæfa möguleika á því að uppfæra svæðisskipulag sitt í samræmi við breyttar forsendur. Þegar svo ber við er eðlilegast að aukinn meiri hluti ráði, þ.e. að a.m.k. fimm af sjö sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu geti kallað fram endurskoðun á svæðisskipulaginu fremur en að eitt sveitarfélag geti þvingað öll hin til þess að lúta áfram skipulagi sem er í andstöðu við framtíðarsýn þeirra. Í frumvarpinu er því lagt til að við breytingar á lögbundnu svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins sé nóg að fyrir liggi samþykki aukins meiri hluta þeirra sveitarfélaga sem aðild eiga að skipulaginu.
    Rétt er að ákvæði 4. mgr. 22. gr. verði áfram óbreytt þar sem sveitarfélögum utan höfuðborgarsvæðisins er ekki skylt að gera með sér svæðisskipulag.
    Þá er jafnframt lagt til að Sveitarfélagið Álftanes verði fellt úr upptalningunni á sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins þar sem það er ekki lengur sjálfstætt sveitarfélag heldur hluti af Garðabæ.