Ferill 268. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 273  —  268. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um sérstaka móttöku fyrir konur innan heilsugæslunnar.

Frá Evu Dögg Davíðsdóttur.


     1.      Hver er framtíðarsýn ráðherra hvað varðar sérstaka móttöku fyrir konur í Heilsugæslunni Mjódd, sem sinnir sérstaklega kvenheilsu?
     2.      Hefur ráðherra lagt mat á árangur verkefnisins? Ef svo er, hverjar eru helstu niðurstöður þess mats?
     3.      Hefur ráðherra áform um að bæta við fleiri sérstökum móttökum sem sérhæfa sig í kvenheilsu, til viðbótar við þá þjónustu sem þegar er veitt í Mjódd?
     4.      Hvað líður þróun og útgáfu fræðsluefnis fyrir almenning og klínískra leiðbeininga fyrir fagfólk sem eiga að styðja við starfsemi móttökunnar?


Skriflegt svar óskast.