Ferill 281. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 287  —  281. mál.
Stjórnartillaga.



Tillaga til þingsályktunar


um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 317/2023 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun), nr. 145/2024 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og nr. 170/2024 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og XII. viðauka (Frjálsir fjármagnsflutningar) við EES-samninginn.


Frá utanríkisráðherra.



    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd eftirfarandi ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar:
     1.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 317/2023 frá 8. desember 2023 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn og fella inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
                  a.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1020 frá 20. júní 2019 um markaðseftirlit og samræmi vara við kröfur og um breytingu á tilskipun 2004/42/EB og reglugerðum (EB) nr. 765/2008 og (ESB) nr. 305/2011.
                  b.      Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1121 frá 8. júlí 2021 þar sem tilgreindar eru upplýsingar um tölfræðileg gögn, sem aðildarríkin eiga að leggja fram að því er varðar eftirlit með vörum sem koma inn á markað Sambandsins, með tilliti til öryggis og samræmi vara.
                  c.      Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1267 frá 20. júlí 2022 um að tilgreina verklagsreglur við tilnefningu prófunarstöðva Sambandsins vegna markaðseftirlits og sannprófunar á samræmi vöru við kröfur í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1020.
     2.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 145/2024 frá 12. júní 2024 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn og fella inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
                  a.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2401 frá 12. desember 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 um varfærniskröfur að því er varðar lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki.
                  b.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2402 frá 12. desember 2017 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun, og um breytingu á tilskipunum 2009/65/EB, 2009/138/EB og 2011/61/ESB og reglugerðum (EB) nr. 1060/2009 og (ESB) nr. 648/2012.
                  c.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/557 frá 31. mars 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/2402 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun til að aðstoða við endurbætur í kjölfar COVID-19 hættuástandsins.
                  d.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/558 frá 31. mars 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar aðlögun á rammanum um verðbréfun til að styðja við efnahagslegar endurbætur til að bregðast við COVID-19 hættuástandinu.
                  e.      Framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1221 frá 1. júní 2018 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2015/35 að því er varðar útreikning á lögbundnum gjaldþolskröfum fyrir verðbréfanir og einfaldar, gagnsæjar og staðlaðar verðbréfanir í eigu vátrygginga- og endurtryggingafélaga.
     3.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 170/2024 frá 5. júlí 2024 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og XII. viðauka (Frjálsir fjármagnsflutningar) við EES-samninginn og fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/1230 frá 14. júlí 2021 um greiðslur yfir landamæri í Sambandinu (kerfisbinding).

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á þremur ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar (fskj. I–XII).

2. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 317/2023 frá 8. desember 2023 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn.
    Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 317/2023 fellir inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
     a.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1020 frá 20. júní 2019 um markaðseftirlit og samræmi vara við kröfur og um breytingu á tilskipun 2004/42/EB og reglugerðum (EB) nr. 765/2008 og (ESB) nr. 305/2011.
     b.      Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1121 frá 8. júlí 2021 þar sem tilgreindar eru upplýsingar um tölfræðileg gögn, sem aðildarríkin eiga að leggja fram að því er varðar eftirlit með vörum sem koma inn á markað Sambandsins, með tilliti til öryggis og samræmi vara.
     c.      Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1267 frá 20. júlí 2022 um að tilgreina verklagsreglur við tilnefningu prófunarstöðva Sambandsins vegna markaðseftirlits og sannprófunar á samræmi vöru við kröfur í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1020.
    Markmið reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1020, og þeirra gerða sem af henni leiða, er að tryggja öruggt og skilvirkt eftirlit með vörum og stuðla að því að eingöngu vörur sem uppfylla kröfur um heilbrigði og almannaöryggi verði gerðar aðgengilegar á innri markaðnum. Einnig er takmarkið að stuðla að því að eingöngu vörur sem uppfylla kröfur þeirrar löggjafar, m.a. um heilbrigði og almannaöryggi, öryggi á vinnustöðum og umhverfisvernd, verði gerðar aðgengilegar á innri markaðnum. Í því skyni að tryggja öryggi neytenda er með reglugerðinni kveðið á um ábyrgð og skyldur rekstraraðila og birgja varðandi viðkomandi vörur, svo sem um hönnun og merkingar, eftirlit á ytri landamærum, eftirlit með vörum sem eru seldar í gegnum netið. Einnig er mælt fyrir um valdheimildir eftirlitsstjórnvalda, ráðstafanir við eftirlit og samvinnu eftirlitsstjórnvalda, jafnt innan einstakra aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins sem og samvinnu markaðseftirlitsstjórnvalda í ríkjum innri markaðarins. Jafnframt er kveðið á um samvinnu eftirlitsstjórnvalda og rekstraraðila sem framleiða eða flytja inn vörur sem falla undir gerðina.
    Upptaka gerðanna í EES-samninginn og innleiðing þeirra hér á landi kallar á breytingar á lögum um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu, nr. 134/1995, sem og á sérlögum um tiltekin eftirlitsstjórnvöld. Fyrirhugað er að menningar- og viðskiptaráðherra leggi fram frumvarp í þessu skyni á vorþingi 2025. Búast má við að einhver kostnaður fylgi innleiðingunni. Unnið er að kostnaðarmati og nánari upplýsingar þar um verður að finna í frumvarpinu.
    Haft var samráð við utanríkismálanefnd og efnahags- og viðskiptanefnd um upptöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1020 til samræmis við reglur Alþingis um þinglega meðferð EES-mála en framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/1121 og framkvæmdarreglugerð (ESB) 2022/1267 kalla ekki á lagabreytingar. Gerðu nefndirnar ekki athugasemdir við upptöku reglugerðarinnar í EES-samninginn. Einnig var haft samráð við utanríkismálanefnd í aðdraganda fundar sameiginlegu EES-nefndarinnar þar sem umrædd ákvörðun var tekin og reglugerðin kynnt nefndinni sérstaklega.

3. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 145/2024 frá 12. júní 2024 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.
    Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 145/2024 fellir inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
     a.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2401 frá 12. desember 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 um varfærniskröfur að því er varðar lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki.
     b.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2402 frá 12. desember 2017 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun, og um breytingu á tilskipunum 2009/65/EB, 2009/138/EB og 2011/61/ESB og reglugerðum (EB) nr. 1060/2009 og (ESB) nr. 648/2012.
     c.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/557 frá 31. mars 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/2402 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun til að aðstoða við endurbætur í kjölfar COVID-19 hættuástandsins.
     d.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/558 frá 31. mars 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar aðlögun á rammanum um verðbréfun til að styðja við efnahagslegar endurbætur til að bregðast við COVID-19 hættuástandinu.
     e.      Framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1221 frá 1. júní 2018 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2015/35 að því er varðar útreikning á lögbundnum gjaldþolskröfum fyrir verðbréfanir og einfaldar, gagnsæjar og staðlaðar verðbréfanir í eigu vátrygginga- og endurtryggingafélaga.
    Um er að ræða svokallaðan verðbréfunarpakka Evrópusambandsins. Markmið hans er að koma á styrkri lagaumgjörð í kringum verðbréfunarviðskipti, með það að markmiði að draga úr áhættunni sem felst í verðbréfun og tryggja aðgreiningu einfaldra, gagnsærra og staðlaðra verðbréfunarafurða frá flóknum, ógagnsæjum og áhættusamari afurðum.
    Verðbréfun er tegund fjármögnunarviðskipta og álitin mikilvægur þáttur í vel starfhæfum fjármálamarkaði, enda sé hún byggð á traustu skipulagi.
    Ákvæði 3. kafla STS-reglugerðarinnar fjalla um skilyrði og verklag við skráningu verðbréfunarskrár hjá Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnuninni (ESMA). Verðbréfunarskrá er lögaðili sem safnar saman og viðheldur gögnum um verðbréfanir miðlægt. Að því er EFTA-ríkin innan Evrópska efnahagssvæðisins varðar fer Eftirlitsstofnun EFTA með þau verkefni sem falin eru ESMA í reglugerðinni, með vísan til laga um evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði, nr. 24/2017.
    Í reglugerð (ESB) 2017/2402, með áorðnum breytingum, eru lykilhugtök verðbréfunar skilgreind og settar fram almennar kröfur sem gerðar eru til allra tegunda verðbréfunar, auk þess sem settar eru fram sértækar kröfur til einfaldrar, gagnsærrar og staðlaðrar verðbréfunar eða svokallaðrar STS-verðbréfunar (e. simple, transparent and standardized).
    Í verðbréfunarpakkanum er áhersla bæði lögð á eindar- og þjóðhagsvarúðareftirlit með verðbréfunarmarkaði, enda brýnt að taka tillit til mögulegrar áhættu af aukinni innbyrðis samtengingu og óhóflegri skuldsetningu sem verðbréfun getur skapað. Samkvæmt reglugerðinni ber aðildarríkjum að tryggja lögbærum yfirvöldum allar nauðsynlegar valdheimildir til að þau geti sinnt eftirliti með því að farið sé að kröfunum auk þess sem ESMA og Evrópska kerfisáhætturáðinu (ESRB) er falið eftirlitshlutverk.
    Reglugerð (ESB) 2017/2402 tók gildi í Evrópusambandinu 1. janúar 2019. Henni var breytt með reglugerð (ESB) 2021/557 er miðaði sérstaklega að því að gera lánastofnunum kleift að draga úr kostnaði og losa um fjármagn fyrir endurbótaferli eftir efnahagslega áfallið sem heimsfaraldur kórónuveiru hefur valdið. Upphafleg reglugerð heimilaði eingöngu að verðbréfanir með raunverulegu framsali væru merktar sem STS, en með breytingareglugerðinni var opnað á verðbréfun á efnahagsreikningi upphafsaðila (tilbúna verðbréfun), að uppfylltum nánari skilyrðum. Verðbréfunargerðirnar verða innleiddar hér á landi í fyrirhuguðum nýjum sérlögum um verðbréfun.
    Samhliða samþykkt reglugerðar (ESB) 2017/2402 voru breytingar gerðar á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 um varfærniskröfur að því er varðar lánastofnanir og fjárfestingarfyrirtæki (CRR-reglugerðin), sem hefur lagagildi á Íslandi samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2401 frá 12. desember 2017 um breytingar á CRR-reglugerðinni er tengjast verðbréfun er því hluti af verðbréfunarpakkanum. Árið 2021 voru á ný gerðar breytingar á CRR-reglugerðinni, með reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/558 frá 31. mars 2021 um breytingu á CRR-reglugerðinni sem varðar aðlögun að almennum ramma fyrir verðbréfun til að stuðla að efnahagsbata í kjölfar COVID-19 faraldursins. Reglugerðir (ESB) 2017/2401 og 2021/558 verða innleiddar hér á landi með breytingum á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.
    Breytingar af svipuðum meiði og gerðar voru á CRR-reglugerðinni voru gerðar á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) 2015/35 (undirgerð Solvency II-tilskipunarinnar), með framseldri reglugerð (ESB) 2018/1221 um útreikning og kröfur til gjaldþols vegna verðbréfunar af hálfu vátrygginga- og endurtryggingafélaga. Lagastoð er til innleiðingar á gerðinni í lögum um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016, og verður hún innleidd með breytingu á reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um vátryggingastarfsemi og vátryggingasamstæður, nr. 55/2022.
    Aðlaganir í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 145/2024 frá 12. júní 2024 taka fyrst og fremst mið af tveggja stoða kerfi EES-samningsins, ekki síst að því er varðar vísanir til heimilda og hlutverka Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunarinnar, sem í tilviki EFTA-ríkjanna innan Evrópska efnahagssvæðisins er falið Eftirlitsstofnun EFTA, auk þess sem ákvæði um gildistökutíma eru aðlöguð.
    Upptaka fyrrgreindra gerða í EES-samninginn og innleiðing þeirra hér á landi kallar á lagabreytingar. Fyrirhugað er að fjármála- og efnahagsráðherra leggi á þessu löggjafarþingi fram frumvarp til nýrra sérlaga um verðbréfun og um breytingar á ýmsum lögum, í samræmi við ákvæði 6. kafla reglugerðar (ESB) 2017/2402 og fyrrgreindar breytingar á CRR- reglugerðinni. Nánar tiltekið verður um breytingartillögur að ræða á ákvæðum laga um fjármálafyrirtæki, verðbréfasjóði, vátryggingastarfsemi, lánshæfismatsfyrirtæki, rekstraraðila sérhæfðra sjóða og afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár.
    Með fyrirhugaðri lagasetningu verður traustri umgjörð komið á um verðbréfunarviðskipti, sem kann að gera verðbréfun að álitlegri kosti við fjármögnun hér á landi en til þessa. Ekki er gert ráð fyrir breytingum á tekjum eða útgjöldum ríkisins. Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands er í stakk búið til að takast á við eftirlit með framkvæmd fyrirhugaðra laga. Fyrirhuguð löggjöf ætti að hafa jákvæð áhrif á fjármálastöðugleika, með vísan til aukinna krafna um upplýsingagjöf, stöðlun og áhættuþátttöku þeirra sem koma að verðbréfun. Unnið er að kostnaðarmati við innleiðingu og nánari upplýsingar um kostnað verður að finna í framangreindu frumvarpi.
    Haft var samráð við utanríkismálanefnd um upptöku reglugerðanna í samræmi við reglur Alþingis um þinglega meðferð EES-mála og gerði hún ekki athugasemdir við upptöku þeirra í EES-samninginn. Einnig var haft samráð við utanríkismálanefnd í aðdraganda fundar sameiginlegu EES-nefndarinnar þar sem umrædd ákvörðun var tekin og verðbréfunargerðirnar kynntar nefndinni sérstaklega. Jafnframt fengu reglugerð (ESB) 2017/2402 og reglugerð (ESB) 2021/557 umfjöllun í efnahags- og viðskiptanefnd sem gerði ekki athugasemdir við upptöku þeirra í samninginn.

4. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 170/2024 frá 5. júlí 2024 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og XII. viðauka (Frjálsir fjármagnsflutningar) við EES-samninginn.
    Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 170/2024 fellir inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/1230 frá 14. júlí 2021 um greiðslur yfir landamæri í Sambandinu (kerfisbinding).
    Markmið reglugerðar (ESB) 2021/1230 er að tryggja að gjöld vegna greiðslna í evrum yfir landamæri ríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins séu hliðstæð því sem gerist vegna greiðslna í evrum innanlands ásamt gagnsæi í greiðsluþjónustu varðandi umreikning gjaldmiðils.
    Með reglugerð (ESB) 2021/1230 um greiðslur yfir landamæri í Evrópusambandinu eru sameinuð með kerfisbindingu (e. codification) ákvæði reglugerðar (EB) nr. 924/2009 um greiðslur yfir landamæri í Evrópusambandinu, tiltekin ákvæði reglugerðar (ESB) nr. 260/2012 og ákvæði reglugerðar (ESB) 2019/518 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 924/2009. Með kerfisbindingunni er ætlunin að draga saman á einn stað breytingar á regluverkinu til einföldunar, skýringarauka og til að bætta aðgengi almennings. Reglugerð (ESB) 2019/518 hafði ekki verið tekin upp í EES-samninginn þegar ákveðið var að endurútgefa reglugerð (EB) nr. 924/2009 með kerfisbindingu.
    Reglugerðir (EB) nr. 924/2009 og (ESB) nr. 260/2012 voru innleiddar í íslenskan rétt með lögum um greiðslur yfir landamæri í evrum, nr. 78/2014. Í greinargerð með frumvarpinu segir að markmið reglugerðanna sé að veita borgurum og fyrirtækjum samræmda, örugga, notendavæna og áreiðanlega greiðsluþjónustu í evrum á samkeppnishæfu verði innan Evrópska efnahagssvæðisins, jafnframt því að tryggja að gjöld vegna greiðslna í evrum yfir landamæri EES-ríkja séu hliðstæð því sem gerist vegna greiðslna í evrum innanlands. Með reglugerð (ESB) 2019/518 voru gerðar breytingar á reglugerð (EB) nr. 924/2009 þar sem talið var nauðsynlegt að grípa til frekari ráðstafana og rýmka meginregluna um jöfn gjöld þannig að hún næði einnig til innlendra greiðslna í gjaldmiðlum aðildarríkja utan evrusvæðisins. Með breytingargerðinni var einnig aukið gagnsæi vegna umreiknings gjaldmiðils í tengslum við kortatengdar greiðslur og millifærslu fjármuna.
    Upptaka fyrrgreindar gerðar (ESB) 2021/1230 í EES-samninginn og innleiðing hennar hér á landi kallar á lagabreytingar. Gert er ráð fyrir að fjármála- og efnahagsráðherra leggi á þessu löggjafarþingi fram frumvarp um ný lög um greiðslur yfir landamæri í evrum sem felli úr gildi samnefnd lög nr. 78/2014. Innleiðing reglugerðar (ESB) 2021/1230 er ekki talin hafa veruleg áhrif hér á landi því þegar er til staðar lagarammi um greiðslur yfir landamæri í evrum. Þá er ekki er gert ráð fyrir fjárhagsáhrifum á ríkissjóð. Um er að ræða tæknilegar aðlaganir í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar.
    Haft var samráð við utanríkismálanefnd um upptöku reglugerðar (ESB) 2021/1230 til samræmis við reglur Alþingis um þinglega meðferð EES-mála og gerði nefndin ekki athugasemdir við upptöku hennar í EES-samninginn. Einnig var haft samráð við utanríkismálanefnd í aðdraganda fundar sameiginlegu EES-nefndarinnar þar sem umrædd ákvörðun var tekin og reglugerðin kynnt nefndinni sérstaklega.

5. Um upptöku ESB-gerða í EES-samninginn og um stjórnskipulegan fyrirvara.
    Á hverju ári er nokkur fjöldi ESB-gerða tekinn upp í EES-samninginn með ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar. Samkvæmt EES-samningnum skuldbinda ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar aðildarríkin að þjóðarétti um leið og þær hafa verið teknar, nema eitthvert þeirra beiti heimild skv. 103. gr. EES-samningsins til að setja fyrirvara um að ákvörðun geti ekki orðið bindandi strax vegna stjórnskipulegra skilyrða heima fyrir. Viðkomandi aðildarríki hefur þá sex mánaða frest frá töku ákvörðunar í sameiginlegu nefndinni til að aflétta fyrirvaranum.
    Almennt hafa íslensk stjórnvöld einungis gert stjórnskipulegan fyrirvara þegar innleiðing ákvörðunar kallar á lagabreytingar hér landi, en í því tilviki leiðir af 21. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, að afla ber samþykkis Alþingis áður en ákvörðun er staðfest. Slíkt samþykki getur Alþingi alltaf veitt samhliða viðeigandi lagabreytingu, en einnig hefur tíðkast að heimila stjórnvöldum að skuldbinda sig að þjóðarétti með þingsályktun áður en landsréttinum er með lögum breytt til samræmis við viðkomandi ákvörðun.
    Áðurnefnd 21. gr. stjórnarskrárinnar tekur til gerðar þjóðréttarsamninga en hún á augljóslega einnig við um þau tilvik þegar breytingar eru gerðar á slíkum samningum. Samkvæmt ákvæðinu er samþykki Alþingis áskilið ef samningur felur í sér afsal eða kvaðir á landi eða landhelgi eða ef hann horfir til breytinga á stjórnarhögum ríkisins. Síðarnefnda atriðið hefur verið túlkað svo að samþykki Alþingis sé áskilið ef gerð þjóðréttarsamnings kallar á lagabreytingar hér á landi.
    Umræddar ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar fela í sér breytingar á EES-samningnum en þar sem þær kalla á lagabreytingar hér á landi voru þær teknar með stjórnskipulegum fyrirvara. Í samræmi við það sem að framan segir er óskað eftir samþykki Alþingis fyrir þeim breytingum á EES-samningnum sem í ákvörðununum felast.


Fylgiskjal I.


Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 317/2023 frá 8. desember 2023 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn.

www.althingi.is/altext/pdf/155/fylgiskjol/s0287-f_I.pdf


Fylgiskjal II.


Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1020 frá 20. júní 2019 um markaðseftirlit og samræmi vara við kröfur og um breytingu á tilskipun 2004/42/EB og reglugerðum (EB) nr. 765/2008 og (ESB) nr. 305/2011.

www.althingi.is/altext/pdf/155/fylgiskjol/s0287-f_II.pdf


Fylgiskjal III.


Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1121 frá 8. júlí 2021 þar sem tilgreindar eru upplýsingar um tölfræðileg gögn, sem aðildarríkin eiga að leggja fram að því er varðar eftirlit með vörum sem koma inn á markað Sambandsins, með tilliti til öryggis og samræmi vara.

www.althingi.is/altext/pdf/155/fylgiskjol/s0287-f_III.pdf


Fylgiskjal IV.


Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1267 frá 20. júlí 2022 um að tilgreina verklagsreglur við tilnefningu prófunarstöðva Sambandsins vegna markaðseftirlits og sannprófunar á samræmi vöru við kröfur í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1020.


www.althingi.is/altext/pdf/155/fylgiskjol/s0287-f_IV.pdf



Fylgiskjal V.


Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 145/2024 frá 12. júní 2024 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.


www.althingi.is/altext/pdf/155/fylgiskjol/s0287-f_V.pdf




Fylgiskjal VI.


Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2401 frá 12. desember 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 um varfærniskröfur að því er varðar lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki.


www.althingi.is/altext/pdf/155/fylgiskjol/s0287-f_VI.pdf



Fylgiskjal VII.


Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2402 frá 12. desember 2017 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun, og um breytingu á tilskipunum 2009/65/EB, 2009/138/EB og 2011/61/ESB og reglugerðum (EB) nr. 1060/2009 og (ESB) nr. 648/2012.


www.althingi.is/altext/pdf/155/fylgiskjol/s0287-f_VII.pdf



Fylgiskjal VIII.


Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/557 frá 31. mars 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/2402 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun til að aðstoða við endurbætur í kjölfar COVID-19 hættuástandsins.


www.althingi.is/altext/pdf/155/fylgiskjol/s0287-f_VIII.pdf



Fylgiskjal IX.


Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/558 frá 31. mars 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar aðlögun á rammanum um verðbréfun til að styðja við efnahagslegar endurbætur til að bregðast við COVID-19 hættuástandinu.


www.althingi.is/altext/pdf/155/fylgiskjol/s0287-f_IX.pdf



Fylgiskjal X.


Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1221 frá 1. júní 2018 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2015/35 að því er varðar útreikning á lögbundnum gjaldþolskröfum fyrir verðbréfanir og einfaldar, gagnsæjar og staðlaðar verðbréfanir í eigu vátrygginga- og endurtryggingafélaga.


www.althingi.is/altext/pdf/155/fylgiskjol/s0287-f_X.pdf



Fylgiskjal XI.


Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 170/2024 frá 5. júlí 2024 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og XII. viðauka (Frjálsir fjármagnsflutningar) við EES-samninginn.

www.althingi.is/altext/pdf/155/fylgiskjol/s0287-f_XI.pdf


Fylgiskjal XII.


Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/1230 frá 14. júlí 2021 um greiðslur yfir landamæri í Sambandinu (kerfisbinding).

www.althingi.is/altext/pdf/155/fylgiskjol/s0287-f_XII.pdf