Ferill 282. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 288  —  282. mál.
Stjórnartillaga.



Tillaga til þingsályktunar


um mótun stefnu um dýraheilsu.


Frá matvælaráðherra.



    Alþingi ályktar að fela matvælaráðherra að vinna að heildarstefnumótun um dýraheilsu sem taki til velferðar dýra, heilbrigði þeirra og heilbrigðisþjónustu við dýr. Í stefnumótunarvinnunni verði tekið mið af hugmyndafræði „One Health“, eða einnar heilsu, þar sem heilsa manna, dýra og umhverfis mynda eina heild. Meginmarkmið stefnumótunarinnar verði að skapa starfsumhverfi sem tryggi yfirsýn yfir heilbrigði og velferð dýra á sama tíma og stuðlað verði að bættu heilbrigði dýra og góðri heilbrigðisþjónustu við þau, ábyrgu dýrahaldi og bættu eftirliti. Ráðherra leggi stefnuna fram í formi tillögu til þingsályktunar á vetrarþingi 2025.

Greinargerð.

    Tímabært er orðið að taka það regluverk er varðar heilbrigði dýra til heildarendurskoðunar og samþætta það við bætta velferð dýra, heilsu manna og umhverfis. Einkum er um að ræða lög um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993, lög um innflutning dýra, nr. 54/1990, lög um velferð dýra, nr. 55/2013, og lög um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, nr. 66/1998. Margt hefur breyst frá setningu núgildandi regluverks hérlendis en einnig á alþjóðlegum vettvangi. Aukin vitund og þekking á heilsu dýra og samfélagslegar breytingar kalla á að málaflokkurinn verði tekinn til gagngerrar skoðunar. Brýnt er að ná fram skýrri stefnu sem hefur beina tengingu við þá framtíðarsýn sem kemur fram í matvælastefnu Íslands til ársins 2040 sem samþykkt var á Alþingi 31. maí 2023, sbr. þingsályktun nr. 20/153, um að öll framleiðsla miði að heilbrigðu umhverfi, heilsu fólks og heilbrigði dýra í anda „One Health“, eða einnar heilsu. Um er að ræða sameiginlega stefnumörkun Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar (WHO), Alþjóðadýraheilbrigðisstofnunarinnar (WHOA), Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) og Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNEP). Þar er lögð áhersla á að heilsa manna verði ekki skilin frá heilsu dýra og umhverfis. Stefnan er alþjóðleg og er henni ætlað að auka þverfaglegt samstarf og samskipti á öllum sviðum heilbrigðismála fyrir menn, dýr og umhverfi. Aðgerðaáætlun gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis sem heilbrigðisráðherra, matvælaráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra staðfestu með undirritun sinni hinn 9. ágúst 2024 var einmitt byggð á nálgun einnar heilsu. Þá kemur sú framtíðarsýn fram í landbúnaðarstefnu til ársins 2040 sem samþykkt var á Alþingi 1. júní 2023, sbr. þingsályktun nr. 21/153, að framleiðsluhættir verði ávallt þannig að heilsa, velferð og aðbúnaður dýra verði höfð að leiðarljósi.
    Sú stefnumótunarvinna sem hér er lögð til er vel til þess fallin að setja skýrt fram hvaða breytingum frá núverandi ástandi er mikilvægt að ná og hvernig, og öðlast með því skýra sýn til framtíðar. Nokkrar skýrslur liggja fyrir um málaflokkinn, svo sem skýrsla ráðherraskipaðs starfshóps frá árinu 2017 um endurskoðun ofangreindra laga, skýrsla Alþjóðadýraheilbrigðisstofnunarinnar (WOAH) um hæfni dýralæknaþjónustu Íslands árið 2017, skýrsla um starfsemi Matvælastofnunar árið 2017 og nýleg skýrsla Ríkisendurskoðunar um stjórnsýsluúttekt á eftirliti Matvælastofnunar með velferð búfjár. Mikill fróðleikur er í þessum skýrslum ásamt gagnlegum ábendingum um það sem betur má fara í stjórnskipulagi og lagaumgjörð. Aðkallandi er að vinna formlega úr þessum skýrslum og setja fram niðurstöður í formi grænbókar (stöðumats) og síðar hvítbókar (stefnu). Þar sem málefni dýraheilsu og tenging þess við „eina heilsu“ tengjast málefnum fjölda ráðuneyta og stofnana þykir rétt að fá umboð Alþingis til þessarar víðtæku stefnumótunarvinnu. Ekki var talin þörf á birta þessa þingsályktunartillögu í samráðsgátt stjórnvalda þar sem hún snýr að því að Alþingi feli matvælaráðherra að hefja framangreinda vinnu. Hins vegar er ljóst að ef tillagan fæst samþykkt verður mikið og þétt samstarf viðhaft í stefnumótunarferlinu sjálfu þannig að almenningur hafi aðkomu að heildarendurskoðun málaflokksins.
    Að loknu ofangreindu ferli er gert ráð fyrir því að heildarstefna um dýraheilsu til ársins 2040 verði lögð fram í formi tillögu til þingsályktunar á vetrarþingi 2025.