Ferill 286. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 292 — 286. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um bótagreiðslur til landeigenda vegna undirbúningsframkvæmda við Holtavirkjun og Hvammsvirkjun.
Frá Ásmundi Friðrikssyni.
1. Hve margir landeigendur, hvort sem það eru einstaklingar eða félög, hafa fengið bætur vegna undirbúningsframkvæmda við Holtavirkjun og Hvammsvirkjun?
2. Hvenær voru bæturnar greiddar út og hvað fékk hver landeigandi háar bætur?
3. Hvað áttu þeir sem fengu bætur mikið land og hversu mikið tjón varð á eignum þeirra?
Skriflegt svar óskast.