Ferill 319. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 329  —  319. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um fagteymi barnungra mæðra.


Flm.: Jódís Skúladóttir, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Eva Dögg Davíðsdóttir, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, Orri Páll Jóhannsson, Steinunn Þóra Árnadóttir, Svandís Svavarsdóttir, Björn Leví Gunnarsson, Gísli Rafn Ólafsson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Jóhann Friðrik Friðriksson, Líneik Anna Sævarsdóttir, Logi Einarsson, Oddný G. Harðardóttir, Bergþór Ólason, Eyjólfur Ármannsson.


    Alþingi ályktar að fela félags- og vinnumarkaðsráðherra og heilbrigðisráðherra að koma á fót fagteymi um stöðu barnungra mæðra, eða mæðra yngri en 18 ára. Fagteymið skal vinna þverfaglega að málefnum sem lúta að lagalegri og félagslegri stöðu mæðra og barna í þessum aðstæðum, sem og að andlegri og líkamlegri heilsu þeirra og öryggi.

Greinargerð.

    Tíðni barneigna ungra stúlkna hefur verið ívið hærri hér á landi en annars staðar á Norðurlöndum síðastliðna áratugi. Meðalaldur mæðra fer hækkandi en alltaf ala einhverjar stúlkur barn áður en þær ná 18 ára aldri. Árið 2003 eignuðust 6% stúlkna á aldrinum 15–19 ára barn á Íslandi. Meðganga og barnsfæðing getur valdið tilfinningalegri streitu fyrir hvaða konu sem er en unglingsstúlkur með lítinn félagslegan stuðning og takmarkaða reynslu af uppeldi vegnar oft verr í þessu ferli og því fylgir áhætta fyrir bæði móður og barn.
    Sökum þessa þarf að huga sérstaklega að stöðu ólögráða mæðra sem iðulega er flókin og viðkvæm. Ekki er að finna í lögum skýr fyrirmæli um hvernig með skuli fara þegar ólögráða einstaklingur eignast barn. Í V. kafla barnalaga, nr. 76/2003, er fjallað um foreldraskyldur og forsjá barns, þar á meðal um inntak forsjár. Ef móðir er ekki í sambúð eða gift föður barnsins við fæðingu þess fer hún að meginreglu til ein með forsjá barns.
    Samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, er markmið félagsþjónustu á vegum sveitarfélaga m.a. að tryggja þroskavænleg uppeldisskilyrði barna og ungmenna og mæta þörfum þeirra fyrir þjónustu á skilvirkan hátt um leið og þörf krefur. Með félagsþjónustu er í lögunum m.a. átt við þjónustu, aðstoð og ráðgjöf í tengslum við málefni barna og ungmenna. Samkvæmt barnalögum eiga mæður yngri en 18 ára rétt á forsjá foreldra sinna, annars eða beggja, uns þær verða sjálfráða. Að sama skapi á barn móður, sem er yngri en 18 ára, rétt á forsjá foreldra sinna. Mæður yngri en 18 ára þurfa tryggan stuðning og ekki er gefið að foreldrar sem fara með forsjá þessara mæðra séu í stakk búnir að takast á við þær fjárhagslegu, félagslegu, andlegu og líkamlegu áskoranir sem fylgja fæðingu barns þegar móðir er yngri en 18 ára.
    Þá búa stúlkur sem verða barnshafandi fyrir 18 ára aldur og velja að eignast barnið við sams konar áskoranir, sem oft eru bæði flóknar og margþættar.

Fjárhagslegar áskoranir.
    Samkvæmt upplýsingum frá Fæðingarorlofssjóði er heimilt að greiða mæðrum yngri en 18 ára fæðingarstyrk en einnig er heimilt að greiða þeim fæðingarorlof ef þær uppfylla skilyrði fyrir slíkum greiðslum. Eðli málsins samkvæmt eiga börn undir 18 ára aldri mjög takmarkaðan rétt til fæðingarorlofs þar sem þátttaka þeirra á vinnumarkaði er naumast hafin. Foreldrar fá annaðhvort fæðingarorlofsgreiðslur eða fæðingarstyrk úr Fæðingarorlofssjóði, en það fer eftir stöðu þeirra á vinnumarkaði.
    Samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof öðlast foreldri rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði eftir að hafa verið í samfelldu starfi í a.m.k. 25% starfshlutfalli á innlendum vinnumarkaði í sex mánuði fyrir fæðingardag barns. Fæðingarstyrkur er greiddur til foreldra í fullu námi, foreldra sem eru utan vinnumarkaðar eða í minna en 25% starfi.
    Foreldrar yngri en 16 ára fá ekki sjálfir úthlutað barnabótum heldur fá þeirra eigin framfærendur barnabætur. Þegar foreldrar barns hafa náð 16 ára aldri teljast þeir framfærendur barns síns og fá þá sjálfir úthlutað barnabótum eftir það.
    Hvert sveitarfélag fyrir sig setur sér reglur um fjárhagsaðstoð. Í reglum Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð kemur fram í 10. gr. að unglingar yngri en 18 ára eigi ekki rétt á fjárhagsaðstoð í eigin nafni. Þó kemur eftirfarandi fram í leiðbeiningum með reglunum: „Ef ungmenni á aldrinum 16 eða 17 ára sækir um fjárhagsaðstoð og er með barn á framfæri sínu þurfa foreldrar/ forsjáraðilar að koma í viðtal og skrifa undir umsóknina ásamt umsækjanda. Starfsmenn skulu þá fyrst hafa samband við foreldra/forsjáraðila umsækjanda og tilkynna þeim um að ungmenni hafi leitað aðstoðar. Þá skulu starfsmenn gera umsækjanda grein fyrir því að framangreind leið verði farin. Kanna þarf fjárhagslega getu foreldra umsækjanda til að sjá fyrir umsækjanda og barni hans. Aðstoðin er skráð á foreldri/forsjáraðila umsækjanda en greidd inn á reikning umsækjanda.“
    Með þessu verklagi virðist gengið út frá því að í öllum tilfellum séu forsjáraðilar til staðar sem eru færir um að sinna skyldum umfram forsjá yfir barni sínu.

Félagslegar áskoranir.
    Rannsóknir hafa leitt í ljós að það er mjög mikilvægt að barnungar mæður hafi félagslegan stuðning og raunverulega aðstoð í móðurhlutverkinu til þess að þeim líði vel. Einnig hafa rannsóknir sýnt fram á að barnungar mæður verða oftar einstæðar mæður, eru líklegri til þess að verða atvinnulausar og þiggja bætur frá félagslega kerfinu. Þær eru oftar háðar áfengi eða fíkniefnum og eru líklegri til sjálfsskaða og í meiri hættu á að gera tilraun til sjálfsvígs. Bein tengsl eru á milli fátæktar og lítils félagslegs stuðnings sem hefur neikvæð áhrif á andlega heilsu.

Andlegar og líkamlegar áskoranir.
    Rannsóknir eru samhljóma um þá staðreynd að unglingsmæður eru um það bil tvisvar sinnum líklegri en eldri mæður til að fá einkenni þunglyndis. Lítið sjálfsálit unglingsstúlkna eykur líkur á að þær þrói með sér kvíða og fæðingarþunglyndi og dregur úr getu þeirra til að tengjast barninu tilfinningaböndum. Þá hafa erlendar rannsóknir sýnt fram á að meiri líkur eru á því að barnungar mæður láti lífið og jafnframt að börn þeirra séu í meiri áhættu en börn eldri mæðra. Þannig hefur verið sýnt fram á 75% hærri tíðni ungbarnadauða hjá ungum mæðrum, 30% meiri líkur á að börn þeirra fæðist of létt og auknar líkur á vandamálum tengdum brjóstagjöf.
    Helstu heilsufarsvandamál ungra mæðra og barna þeirra eru háþrýstingsvandamál móður, á meðgöngu og eftir fæðingu, fyrirburafæðingar og lág fæðingarþyngd.