Ferill 322. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 334  —  322. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um stuðning við döff, heyrnarlaus og heyrnarskert börn og ungmenni.


Flm.: Oddný G. Harðardóttir, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Bergþór Ólason, Bryndís Haraldsdóttir, Hanna Katrín Friðriksson, Jódís Skúladóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir, Tómas A. Tómasson.


    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa starfshóp með fulltrúum heilbrigðisráðuneytis, félags- og vinnumarkaðsráðuneytis, menningar- og viðskiptaráðuneytis og mennta- og barnamálaráðuneytis ásamt fulltrúa frá Félagi heyrnarlausra og frá Fjólu, félagi fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, sem hafi það hlutverk að setja fram áætlun sem miðar að því að lífsgæði og tækifæri döff, heyrnarlausra og einstaklinga með heyrnarskerðingu verði aukin. Þar verði lögð áhersla á eftirfarandi:
     _      Að alhliða þjónusta við döff, heyrnarlausa og heyrnarskerta verði á einum stað.
     _      Að aðgengi verði bætt að öryggistækjum sem nema hljóð úr nærumhverfi, heimili og vinnustöðum.
     _      Að tækifæri til menntunar verði bætt til muna.
     _      Að komið verði á tengslum við erlenda táknmálsskóla og veita námsstyrki.
     _      Að foreldrar döff og heyrnarlausra barna fái vinnutapsstyrki til að læra táknmál.
     _      Að veittir verði styrkir til túlkunar svo að njóta megi menningarviðburða í auknum mæli.
     _      Að íslenskt sjónvarpsefni verði textað.
     _      Að sköpuð verði fleiri atvinnutækifæri fyrir táknmálsfólk.
     _      Að stjórnsýslan taki tillit til táknmáls og eigi samtal við táknmálsfólk.
     _      Að hljóðgervlar, raddgervlar, tækni til að þýða táknmál og önnur máltækni sem stuðlað getur að bættum lífsgæðum döff, heyrnarlausra og heyrnarskertra verði þróuð fyrir daglegt líf og gerð aðgengileg án endurgjalds.
     _      Að málstefnu íslensks táknmáls 2024–2027 og aðgerðaáætlun verði fylgt eftir.

Greinargerð.

    Niðurstöður rannsóknar Kristins Diego sem gerð var á árunum 2016–2020 benda til þess að döff fólk nái ekki að hafa nægjanleg félagsleg samskipti á táknmáli hér á landi og að það hafi mikil áhrif á sjálfsmynd þess. Döff fólk og samfélag heyrnarlausra standa frammi fyrir miklum breytingum, einkum vegna aukinna kuðungsígræðslna og annarra tæknibreytinga. Mikilvægt er að brugðist verði við þeim breytingum til þess að tryggja lífsgæði döff fólks hér á landi.
    „Moores (1978a) segir að heyrnarlaus teljist vera sú manneskja sem hefur svo takmarkaða heyrn að hún geti ekki skilið talað mál, jafnvel þótt hún noti heyrnartæki. Heyrnarskert kallast sú manneskja sem heyrir það illa að það veldur henni erfiðleikum við að skilja talað mál þó að það sé ekki útilokað, með eða án heyrnartækja.
    Moores (1978a) hefur einnig skilgreint tvö hugtök til viðbótar sem geta valdið misskilningi. „Meðfætt heyrnarleysi“ merkir heyrnarleysi frá fæðingu hver sem orsök þess kann að vera. „Arfgengt heyrnarleysi“ er venjulega einnig meðfætt en kemur þó stundum ekki fram fyrr en síðar á ævinni. Einnig þarf að hafa í huga hvernig fólk lítur á eða skilgreinir sjálft sig. Sumir heyrnarlausir vilja líta á sig sem „heyrnarskerta“ vegna þess að þeir vilja forðast að nota hugtakið „heyrnarlaus“. Svo eru aðrir heyrnarlausir sem kjósa að umgangast aðallega heyrnarlaust fólk og líta á sig sem döff. Döff er hugtak sem er notað um heyrnarlaust eða heyrnarskert fólk sem talar táknmál og lítur á táknmál sem sitt fyrsta mál og tilheyrir samfélag heyrnarlausra.
    Freebody og Power (2001) halda því fram að líta megi á heyrnarleysi frá ólíkum hliðum og því hafa þeir sett fram þrjú ólík sjónarhorn á heyrnarleysi. Í fyrsta lagi ræða þeir um skerðingu, fötlun eða röskun sem tengist læknisfræðilega sjónarhorninu. Í öðru lagi hindranir sem heyrnarlausir mæta, sérstaklega í samskiptum við hið heyrandi samfélag, sem tengjast félagslega sjónarhorninu. Í þriðja lagi skilgreina þeir döff sem samfélag eða sérstaka menningu“ (2020, Kristinn Diego).

Lífsgæði og tækifæri.
    Lífsgæði og tækifæri döff eða heyrnarlausra barna ættu að vera leiðarljós stjórnvalda þegar lausnir og tilboð eru smíðuð.
    Máltaka verður að hefjast snemma hjá döff eða heyrnarlausum börnum eins og hjá heyrandi börnum. Táknmálsörvun er þeim nauðsynleg líkt og raddmálsörvun er heyrandi börnum og því er snemmtæk íhlutun lykilatriði. Einnig sýna rannsóknir að með snemmtækri íhlutun styrkjast tengslin á milli foreldra og barns. Ekki er nóg að annað foreldrið tali táknmál en nokkuð er um að einungis móðirin tali táknmál því það tekur tíma frá launaðri vinnu að læra málið og heimilin mega ekki við þeim tekjumissi. Því er styrkur vegna vinnutaps í táknmálsnámi mikilvægur. Þannig væri undirstaða frekari árangurs og lífsgæða barna styrkt. Nauðsynlegt er að nánustu aðstandendur barns sem greint er heyrnarlaust eða með heyrnarskerðingu fái leiðbeiningar og fræðslu um táknmálið þannig að það verði jafnsett íslensku á heimili barnsins.
    Hér á landi er ekkert námsframboð að finna þar sem táknmál er í sterkri stöðu. Áhersla á talmál vex með aldrinum í skólakerfinu og þar með í framhaldsskóla og háskóla. Málþekking er mikilvæg og valdeflandi. Með góðri þekkingu á raddmáli er hægt að læra að lesa sem aftur veitir aðgang að námsgögnum. Efla þarf tengsl við táknmálsskóla á öllum skólastigum og styrkja nemendaskipti á framhaldsskólastigi og háskólastigi. Þekktir táknmálsháskólar eru t.d. í Bandaríkjunum. Í Noregi er einnig góður stuðningur við heyrnarlaus börn sem nota táknmál.
    Döff börn mega aldrei vera látin afskiptalaus í skólum með heyrandi börnum. Stuðning við starfsfólk sem vinnur með döff börnum þarf að auka og tryggja með aðhaldi og eftirliti að farið sé eftir lögum. Starfsfólk með færni og þekkingu á táknmáli er mikilvægt og verðmætt.
    Árið 1994 var fyrst boðið upp á nám í táknmálsfræði við Háskóla Íslands og táknmálstúlkun. Fyrstu táknmálstúlkarnir útskrifuðust frá HÍ sumarið 1997. Táknmálstúlkar mynda eins konar brú á milli táknmálsfólks og annarra. Táknmálsfólki gefst með túlkun tækifæri til að segja það sem því býr í brjósti á sínu máli sem það skilur best og á auðveldast með að tjá sig á. Vandinn er sá að fjármunir sem ætlaðir eru í táknmálstúlkun eru takmarkaðir, sem veldur óréttlæti sem bitnar á táknmálsfólki. Mögulegt er að fá túlkun frá sjálfstætt starfandi táknmálstúlkum en þeim þarf að greiða sérstaklega fyrir túlkunina. Annmarkar eru of margir á túlkaþjónustunni sem takmarkar notkunarmöguleika, svo sem að einungis er boðið upp á myndsímatúlkun á dagvinnutíma.

Norræn tengsl og skilvirkar boðleiðir.
    Nauðsynlegt að efla tengsl við norrænar stofnanir, ekki síst vegna menntunar og símenntunar starfsfólks. Mikilvægt er fyrir lítið samfélag að mynda tengsl við þjóðir sem eru með stærra samfélag döff, heyrnarlausra og heyrnarskertra. Félag heyrnarlausra og Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra er í aðstöðu til að efla slík tengsl, styrkja þau sem fyrir eru og mynda ný.
    Heyrnar- og talmeinastöð heyrir undir heilbrigðisráðuneyti, Samskiptamiðstöðin, sem sinnir táknmálinu, heyrir undir menningar- og viðskiptaráðuneyti, skólamálin undir og mennta- og barnamálaráðuneyti og félagsmálin undir félags- og vinnumarkaðsráðuneyti. Með því að dreifa þjónustu og stuðningi við döff, heyrnarlausa og heyrnarskerta um stjórnkerfið er ýtt undir togstreitu á milli kerfa og á milli fólks sem þarf á kerfunum að halda. Því er mikilvægt að hafa alhliða þjónustu við döff, heyrnarlausa og heyrnarskerta undir einum hatti. Koma má einnig í veg fyrir tvíverknað og minnka álag á starfsfólk með slíku fyrirkomulagi. Hafa þarf í huga að hætta óþarfa verkum, svo sem að kalla einstaklinga með meðfætt heyrnarleysi reglulega í heyrnarmælingu svo þeir geti fengið styrki úr velferðarkerfinu.
    Stofnun eins og Heyrnar- og talmeinastöð er skylt að mæla heyrn, veita ráðgjöf um heyrnartæki, annast uppsetningu og aðrar meðferðir við heyrnarmissi og að vera ráðgefandi um hjálpartæki. Stöðin á að leiðbeina fólki eftir heyrnarmissi eða -skerðingu en hafa þarf það í huga að heyrnartæki og kuðungsígræðsla geta ekki komið í staðinn fyrir táknmál og hjálpartæki.

Styrkir, hvatar og tækni.
    Samskiptastyrk var komið á í kringum aldamótin og var þá 30.000 kr. Mögulegt er að fá styrkinn á þriggja ára fresti og er hann ætlaður til kaupa á farsíma, tölvu eða spjaldtölvu sem hægt er að eiga skrifleg samskipti með. Styrkurinn er enn 30.000 kr. og hefur aldrei hækkað miðað við verðlag á öllum þessum tíma.
    Tæknin býður upp á ýmsa möguleika. Í dag er fáanleg góð tækni til að breyta hljóði (frá hljóðnema eða úr hljóðskrám) yfir í texta, þ.e. talgreining og textasetning/skjátextun. Leggja þarf í það vinnu að koma tækninni í app sem væri þægilegt í notkun í daglegu lífi. Sama má segja um tækni sem breytir texta í tal (raddgervill). Ekki eru tiltækar lausnir sem þýða íslenska táknmálið. Með hjálp myndgreiningar og myndgervingar sem gervigreindartækni hjálpar til við væri mögulegt að þróa slíkt app. Sjálfvirk viðbót táknmálsglugga inn í sjónvarpsútsendingar og myndbandsefni og mögulega þýðing í appi sem getur breytt táknmáli í tal eða texta og svo til baka eftir þörfum. Nýta á tæknina á sem fjölbreyttastan hátt til að létta einstaklingum lífið, auka möguleika á samskiptum og menntun ásamt því að rjúfa einangrun sem heyrnarleysi getur skapað.
    Textun á innlendu sjónvarpsefni ætti að vera skylda á bæði einkareknum og ríkisreknum sjónvarpsstöðvum. Það er mikilvægt fyrir döff og heyrnarlausa en einnig fyrir þá sem búa við heyrnarskerðingu. Táknmálsfólk er rúmlega 300 talsins hér á landi en heyrnarskertir sem ekki tala táknmál eru taldir vera minnst 20 þúsund talsins. Einstaklingar með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu eru um 100 talsins, þar af helmingur börn, en eru um það bil 200 fleiri ef einstaklingar eldri en 67 ára eru taldir með.
    Atvinnutækifærum verður að fjölga og innleiða hvata til ráðningar táknmálsfólks. Aðgengi að öryggistækjum sem nema hljóð úr nærumhverfi skiptir miklu. Það á bæði við á heimilum og vinnustöðum.

    Afar mikilvægt er að málstefnu íslensks táknmáls 2024–2027 og aðgerðaáætlun verði fylgt eftir. Barnasáttmálann og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks þarf að leggja til grundvallar öllum laga- og reglubreytingum í málaflokknum.