Ferill 324. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 336 — 324. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um sameiningar stofnana.
Frá Jódísi Skúladóttur.
1. Hver er beinn fjárhagslegur sparnaður ríkisins vegna fyrirhugaðrar sameiningar stofnana á vegum ráðuneytisins, þ.e. sameiningar Umhverfisstofnunar, Vatnajökulsþjóðgarðs, Náttúrufræðistofnunar Íslands, Landmælinga Íslands, Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn og Orkustofnunar í Náttúruverndarstofnun á Hvolsvelli annars vegar og Náttúrufræðistofnun á Akranesi hins vegar og Umhverfis- og orkustofnun? Hversu mikið er áætlað að sparist á árinu 2025 í viðkomandi stofnunum í starfsmannahaldi, húsakynnum og umsýslu? Svar óskast sundurliðað eftir stofnunum.
2. Hvað eru áætlaðar margar uppsagnir starfsmanna og í hvaða stofnunum samhliða aðgerðum um sameiningu?
3. Er áætlað að útvista verkefnum úr sameinuðum stofnunum og ef svo er, hvaða verkefnum?
Skriflegt svar óskast.