Ferill 19. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 355  —  19. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Loga Einarssyni um sjúkraskrárkerfið Sögu.


     1.      Hver er eigandi og rekstraraðili sjúkraskrárkerfisins Sögu?
    Fyrirtækið Helix Health ehf., dótturfyrirtæki Origo samsteypunnar, er eigandi kerfisins sem heldur utan um rafrænar sjúkraskrár hjá opinberum veitendum heilbrigðisþjónustu. Helix Health hýsir í einhverjum tilvikum kerfi sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmanna, en að öðru leyti rekur hver heilbrigðisstofnun sitt kerfi.

     2.      Hver er heildarkostnaður ríkisins af sjúkraskrárkerfinu Sögu frá upphafi, sundurliðað eftir árum, upprunalegum þróunarkostnaði, rekstrarkostnaði, viðhaldskostnaði og kostnaði við uppfærslur og viðauka við kerfið?
    Sögukerfið var upphaflega tekið í notkun árið 1993. Til að afla svara við þessari spurningu þyrfti ráðuneytið því að ráðast í afar umfangsmikla gagnaöflun meðal allra stofnana á málefnasviði þess. Spurningin uppfyllir því ekki áskilnað 1. mgr. 57. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, um að fyrirspurn eigi að vera skýr, um afmörkuð atriði og að hægt sé að svara henni í stuttu máli.

     3.      Með hvaða hætti er samráði við heilbrigðisstofnanir og starfsfólk sem notar sjúkraskrárkerfið Sögu háttað í tengslum við uppfærslu á kerfinu?

    Breytingar og uppfærslur á kerfinu Sögu eiga sér iðulega stað vegna fyrirspurna og ábendinga frá heilbrigðisstarfsfólki og þar af leiðandi í samráði við það. Stærri breytingar eru gerðar í samráði við verkefnahópa sem skipaðir eru fulltrúum stofnana sem nýta þær einingar sem til stendur að breyta hverju sinni.

     4.      Hver er afstaða ráðherra til áframhaldandi notkunar á sjúkraskrárkerfinu Sögu? Er ráðherra fylgjandi áframhaldandi notkun á kerfinu eða telur hann aðra lausn geta leyst kerfið af í náinni framtíð? Ef svo er, hvaða lausn er það?
     Sögukerfið hefur ekki þróast í takti við þarfir heilbrigðisþjónustu og sú þróun sem átt hefur sér stað hefur að mestu leyti verið fjármögnuð af Landspítala og embætti landlæknis. Þá eru elstu hlutar Sögukerfisins skrifaðir í eldra umhverfi sem veldur erfiðleikum við þróun þess og tíðum rekstrartruflunum . Stýrihópur ráðuneytisins um þróun og stefnumótun um stafrænar lausnir ályktaði í áfangaskýrslu sinni, sem birt var í júní 2023, að ráðast þyrfti í könnun á því hvort áfram eigi að nýta Sögukerfið eða hvort koma eigi upp nýju sjúkraskrárkerfi. Í framhaldi af því var Ríkiskaupum falið að vinna upphafsgreiningu á tiltækum valkostum varðandi framtíð rafrænna sjúkraskrárkerfa. Fyrst a áfanga þeirrar greiningarvinnu er nú lokið og vinnur Fjársýslan að því að greina frekar þær niðurstöður út frá áætluðum kostnaði og ávinningi mismunandi valkosta. Fyrir liggur að upptaka nýs sjúkraskrárkerfis yrði verulega kostnaðarsamt verkefni , hvort tveggja vegna kostnaðar við kerfið sjálft og við innleiðingu þess, en það gæti skila ð fjölþættum ávinningi til lengri tíma litið .