Ferill 210. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 375 — 210. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Ingu Sæland um fjölda fanga og sakborninga með erlent ríkisfang og alþjóðlega vernd.
1. Hve margir fangar í íslenskum fangelsum eru með erlent ríkisfang?
Samkvæmt upplýsingum frá Fangelsismálastofnun voru 30 erlendir ríkisborgarar í afplánun í íslenskum fangelsum miðað við stöðuna í byrjun október 2024. Auk þess voru 20 erlendir ríkisborgarar í gæsluvarðhaldi á sama tíma.
2. Hve margir fangar í íslenskum fangelsum hafa fengið alþjóðlega vernd á Íslandi?
Samkvæmt upplýsingum frá Fangelsismálastofnun liggja ekki fyrir upplýsingar um fjölda fanga í íslenskum fangelsum sem fengið hafa alþjóðlega vernd á Íslandi.
3. Hve margir einstaklingar sem hafa fengið alþjóðlega vernd á Íslandi eru með réttarstöðu sakbornings?
Samkvæmt upplýsingum frá ríkislögreglustjóra liggja ekki fyrir upplýsingar um fjölda einstaklinga sem fengið hafa alþjóðlega vernd á Íslandi og eru með réttarstöðu sakbornings.