Ferill 332. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 385 — 332. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um þarfagreiningu á almenningssamgöngum á landsbyggðinni.
Flm.: Eva Dögg Davíðsdóttir, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, Jódís Skúladóttir, Orri Páll Jóhannsson, Steinunn Þóra Árnadóttir, Svandís Svavarsdóttir.
Alþingi ályktar að fela innviðaráðherra að gera ítarlega þarfagreiningu á almenningssamgöngum, með sérstakri áherslu á landsbyggðina, með það að markmiði að samþætta leiðakerfi landsbyggðarinnar við höfuðborgarsvæðið. Þarfagreiningunni skal skilað í formi skýrslu til Alþingis eigi síðar en 1. maí 2025.
Greinargerð.
Með þessari þingsályktunartillögu er lagt til að gerð verði heildstæð þarfagreining á almenningssamgöngum með sérstakri áherslu á landsbyggðina þar sem samgöngur eru takmarkaðri en á höfuðborgarsvæðinu og þarfnast úrbóta. Mikilvægt er að kortleggja raunverulegar þarfir íbúa og ferðalanga til þess að tryggja að samgöngur séu skilvirkar og uppfylli þarfir þeirra. Ungt fólk á landsbyggðinni sem gjarnan sækir skóla eða þjónustu til höfuðborgarsvæðisins er háð því að almenningssamgöngur innan og utan svæðisins séu samþættar svo að biðtími sé sem skemmstur.
Almenningssamgöngur eru hluti af grunninnviðum samfélagsins, en rekstur þeirra hefur að markmiði að bæta lífsgæði fólks og draga úr umhverfisáhrifum fremur en að skapa hagnað. Loftslagsbreytingar og þörfin á að draga úr einkabílaumferð krefjast aðgerða sem styðja við umhverfisvænni og sjálfbærari samgöngur. Almenningssamgöngur þurfa því að vera aðgengilegar og hagkvæmar fyrir alla landsmenn, óháð búsetu, og er þarfagreiningin nátengd þeirri stefnu stjórnvalda að auka vægi almenningssamgangna í samgönguáætlun.
Verkefnið skal vinna í nánu samstarfi við sveitarfélög, Strætó bs., Vegagerðina, Byggðastofnun, landshlutasamtök og aðra hlutaðeigandi aðila.