Ferill 10. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 10  —  10. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um jarðakaup erlendra aðila.

Flm.: Halla Hrund Logadóttir, Ingibjörg Isaksen, Sigurður Ingi Jóhannsson, Stefán Vagn Stefánsson, Þórarinn Ingi Pétursson.


    Alþingi ályktar að fela atvinnuvegaráðherra í samráði við forsætisráðherra, dómsmálaráðherra, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að skipa sérfræðihóp sem útfæri frekari breytingar á lögum með það að markmiði að takmarka jarðakaup erlendra aðila hér á landi. Starfshópurinn skili drögum að frumvarpi sem lagt verði fram af atvinnuvegaráðherra eigi síðar en á haustþingi 2025.

Greinargerð.

    Með þingsályktunartillögu þessari er atvinnuvegaráðherra falið að skipa sérfræðihóp sem útfæri frekari breytingar á lögum með það að markmiði að takmarka jarðakaup erlendra aðila hér á landi. Þar sem málefni jarða og eignarréttinda yfir þeim eiga snertifleti við nokkur ráðuneyti er lagt til að ráðherra hafi samráð við forsætisráðherra, dómsmálaráðherra, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra við skipan starfshópsins. Starfshópurinn skili drögum að frumvarpi sem verði lagt fram af ráðherra eigi síðar en á haustþingi 2025. Tillagan er sett fram í ljósi langtímahagsmuna Íslands í auðlindamálum.
    Fram hefur komið að kaup erlendra aðila á jörðum til útflutnings á jarðefnum eru í undirbúningi á Mýrdalssandi. Upphaflega hugsunin á bak við lög um nýtingu jarðefna var m.a. að bændur og Vegagerðin hefðu auðvelt aðgengi að möl og sandi til að byggja fjárhús og leggja vegi. Lögunum var ekki ætlað að stuðla að útflutningi jarðefna. Þá hafa jarðir verið seldar með vatnsréttindum til félaga í erlendri eigu. Vatnalögum, nr. 15/1923, var m.a. ætlað að tryggja sveitarfélögum aðgengi að vatni. Þau gerðu ekki ráð fyrir að vatn væri mikilvæg verðmæti í hlýnandi heimi sem flest önnur ríki hafa kortlagt út í ystu æsar. Áhugi á jarðakaupum í tilgangi orkunýtingar og innviða fer vaxandi en dæmi um slíkt má finna í vatnsafli, vindi og jarðhita. Græna orkan er olía framtíðarinnar og eignarhald á slíkum auðlindum þarf að hugsa til langs tíma. Erlendir aðilar hafa einnig verið að kaupa jarðir sem hafa að geyma mikilvægt ræktarland sem getur sett takmarkanir á nyt þess í landbúnaði og matvælaframleiðslu í framtíðinni.
    Þróunin vekur upp margs konar spurningar um nauðsyn þess að styrkja lagaramma og stjórnsýslu þessara málaflokka.
    
Alþjóðaviðskipti lífæð þjóðarinnar en sala á auðlindum ekki nauðsynleg.
    Grunnurinn að velmegun á Íslandi liggur í öflugum alþjóðaviðskiptum og alþjóðasamskiptum sem sést í útflutningi á áli og sjávarfangi svo dæmi séu tekin. Miklir möguleikar til framtíðar eru einmitt tengdir viðskiptum á ofangreindum auðlindasviðum.
    Alþjóðaviðskipti og fjárfestingar krefjast þess hins vegar ekki að auðlindir séu seldar út fyrir landsteinana. Þvert á móti er hægt að laða að erlent fjármagn og stunda öflug viðskipti til dæmis með því að veita aðkomu að verkefnum í gegnum nýtingarleyfi. Fjárfesting í gegnum nýtingarleyfi er til dæmis nýtt í auðlindaríku landi líkt og Ástralíu. Fleiri leiðir eru færar og hægt að greina og útfæra sem snúa að takmörkunum á jarðakaupum erlendra aðila og ljóst er að mörg Evrópuríki ganga lengra í þeim málum en Ísland í sinni löggjöf með auðlinda- og öryggissjónarmið í huga.
    
Af hverju skiptir þetta máli: Geopólitík og hagsmunir ríkja til langs tíma.
    Þegar er nokkur fjöldi jarða í erlendri eigu, og auðlindir sem þeim fylgja því sömuleiðis, og eðlilegt að spyrja hvort þetta sé eitthvað til að taka slaginn fyrir. En yfir langan tíma þegar einstakar jarðir landsins raðast saman upp eins og mörg stök púsl í stærri heildarmynd, þá getur niðurstaðan haft áhrif á stjórn okkar og hagsmuni bæði innan lands og utan.
    Vegna þessa þarf að teikna upp mismunandi sviðsmyndir af eignarhaldi auðlinda og greina hvað þær geta þýtt fyrir landið fyrir komandi kynslóðir. Þannig má taka meðvitaðar ákvarðanir um hvert skal haldið með útfærslu í lögum og reglum og styðja þróun byggða landsins um leið.
    
Barátta fortíðarinnar.
    Margvísleg barátta á sviði auðlindamála Íslands hefur verið háð í fortíðinni. Vel er lýst í ævisögu Jóhannesar Nordal þeirri hugsun ríkisins að kaupendur orkunnar gætu verið erlendir fjárfestar og fyrirtæki líkt og álverin en að framleiðslan á orkunni væri í innlendri eigu. Höfum í huga að slíkt var alls ekki sjálfsagt. Í mörgum ríkjum eiga fyrirtæki virkjanirnar sömuleiðis og svo hefði vel getað farið hér. Þessi langtímahugsun forvera okkar tryggði hins vegar að við eigum gríðarleg verðmæti í virkjunum landsins í dag.
    Í sjávarútveginum er annað gott dæmi. Þar háðum við endurtekin þorskastríð við Breta til að tryggja að við ættum fiskinn í sjónum við landið okkar. Þótt ýmis deilumál hafi risið um kvótakerfið má samt telja að flestir séu sammála um að við getum verið þakklát þeirri niðurstöðu að takmarkanir voru settar á erlent eignarhald auðlindarinnar sjálfrar sem skilar miklu í þjóðarbúið.
    
Fyrir framtíðina.
    Á þeim tíma þegar Landsvirkjun var stofnuð og barist var fyrir landhelginni voru Íslendingar að leggja grunn að framtíð sinni sem íbúar í nýlega sjálfstæðu ríki og mikil áhersla var lögð á að byggja til framtíðar. Í dag hefur samfélagið vaxið og dafnað og verðmæti þessara auðlinda okkar – hvort sem er kalt eða heitt vatn, orka og jarðefni – sömuleiðis aukist til muna. Í raun má segja að við höfum aldrei verið með jafn góð spil á hendi og möguleikar okkar eru óteljandi og öfundsverðir í alþjóðlegu samhengi.
    Við þurfum hins vegar að láta okkur málin varða svo að vel sé búið um hnútana og tækifærin fyrir samfélagið nýtt til fulls. Með slíkri langtímahugsun má tryggja að afkomendur okkar geti, líkt og við, litið um öxl og fyllst þakklæti yfir því hvernig við spiluðum úr spilunum af kostgæfni; fyrir kynslóðir okkar tíma en ekki síður fyrir framtíðina.
    Í ljósi þess sem hér hefur verið rakið er skorað á ráðherra að taka upp jarðalög, nr. 81/2004, og skyld lög, sem hafa áður verið til skoðunar, og ganga lengra í takmörkunum á jarðakaupum erlendra aðila. Samhliða þyrfti einnig að innleiða löggjöf um rýni á erlendar fjárfestingar þegar þær eiga við sömu auðlindahagsmuni þjóðarinnar.