Ferill 113. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Prentað upp.

Þingskjal 113  —  113. mál.
Skriflegt svar.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um erlenda fanga.

Frá Diljá Mist Einarsdóttur.


     1.      Hve margir fangar með erlent ríkisfang voru í íslenskum fangelsum síðustu fimm ár og hvert var hlutfall erlendra fanga? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
     2.      Hver var kostnaður við túlkaþjónustu fyrir erlenda fanga síðustu fimm ár? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
     3.      Hvernig eru erlendum föngum tryggð fullnægjandi réttindi eins og upplýsingagjöf?
     4.      Hver er afstaða ráðherra til þess að gera samkomulag við önnur ríki um að fangar með erlent ríkisfang afpláni dóma í sínu heimalandi?


Skriflegt svar óskast.