Ferill 114. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 114  —  114. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um kostnað vegna þeirra sem nota þjónustu bráðamóttökunnar og Læknavaktarinnar.

Frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur.


    Hvernig skiptist fjöldi þeirra sem nýttu annars vegar þjónustu bráðamóttökunnar í Fossvogi og við Hringbraut og hins vegar þjónustu Læknavaktarinnar árin 2022–2024 eftir
     a.      íslenskum ríkisborgurum,
     b.      erlendum ferðamönnum,
     c.      erlendu vinnuafli,
     d.      hælisleitendum,
     e.      aðilum sem hafa fengið alþjóðlega vernd á Íslandi,
     f.      öðrum?
    Hver var kostnaður við þjónustu við hvern þessara hópa á hverjum stað á sama árabili? Hverjar voru tekjur bráðamóttökunnar á sama árabili?


Skriflegt svar óskast.