Ferill 230. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 261  —  230. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um markaðsvirði Landsvirkjunar, arðgreiðslur o.fl.

Frá Degi B. Eggertssyni.


     1.      Hvert er metið markaðsvirði Landsvirkjunar miðað við hefðbundnar aðferðir við verðmat?
     2.      Hefur Landsvirkjun fengið bein fjárframlög úr ríkissjóði frá því að ríkið keypti hluti Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar í fyrirtækinu árið 2007?
     3.      Hver var greiðsla ríkisins fyrir hluti Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar í fyrirtækinu árið 2007 að núvirði?
     4.      Hverjar hafa samanlagðar arðgreiðslur Landsvirkjunar til ríkisins verið að núvirði frá því að ríkið keypti hluti Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar í fyrirtækinu árið 2007?
     5.      Hvað hefðu Reykjavíkurborg og Akureyrarbær fengið í arðgreiðslur frá Landsvirkjun á árunum 2007–2024 að núvirði ef sveitarfélögin hefðu ekki selt hluti sína í fyrirtækinu árið 2007?


Skriflegt svar óskast.