Ferill 232. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 263  —  232. mál.




Fyrirspurn


til innviðaráðherra um uppbyggingu og opnun Bláfjallavegar.

Frá Árna Rúnari Þorvaldssyni.


     1.      Liggur fyrir mat á því til hvaða framkvæmda og aðgerða þurfi að grípa af hálfu Vegagerðarinnar svo hægt verði að opna Bláfjallaveg að nýju þannig að hann standist öll viðmið er varða vatnsvernd á svæðinu? Ef svo er, liggur fyrir kostnaðarmat á þeim framkvæmdum og aðgerðum?
     2.      Hver er stefna Vegagerðarinnar vegna Bláfjallavegar? Stendur til að opna veginn á nýjan leik og ef svo er, hvenær er stefnt að því að Bláfjallavegur verði opnaður aftur?


Skriflegt svar óskast.