Ferill 114. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 339  —  114. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur um kostnað vegna þeirra sem nota þjónustu bráðamóttökunnar og Læknavaktarinnar.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvernig skiptist fjöldi þeirra sem nýttu annars vegar þjónustu bráðamóttökunnar í Fossvogi og við Hringbraut og hins vegar þjónustu Læknavaktarinnar árin 2022–2024 eftir
     a.      íslenskum ríkisborgurum,
     b.      erlendum ferðamönnum,
     c.      erlendu vinnuafli,
     d.      hælisleitendum,
     e.      aðilum sem hafa fengið alþjóðlega vernd á Íslandi,
     f.      öðrum?
    Hver var kostnaður við þjónustu við hvern þessara hópa á hverjum stað á sama árabili? Hverjar voru tekjur bráðamóttökunnar á sama árabili?


    Sjúklingar eru flokkaðir í sjúkratryggða og ósjúkratryggða í sjúkraskrárkerfum Landspítala og Læknavaktar.
    Ósjúkratryggðir eru ekki flokkaðir í þá undirflokka sem óskað er eftir en þeir geta verið íslenskir ríkisborgarar sem búsettir eru erlendis, erlendir ferðamenn eða umsækjendur um alþjóðlega vernd. Af þeim sökum er ekki unnt að svara fyrirspurninni frekar.