Ferill 153. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 341  —  153. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Davíðsdóttur um skráningu slysa.


     1.      Hvernig er skráningu slysa háttað? Hvernig eru gögn slysaskrár, sem hafa ekki verið gæðaprófuð síðan árið 2013, gæðaprófuð nú í ljósi þess að á island.is er engar upplýsingar að finna frá árinu 2019 um fjölda skráðra slysa?
    Slys eru skráð hjá þeim aðilum sem koma að málum í hvert sinn. Eftirtaldir aðilar skrá í sín kerfi ef þeir hafa aðkomu að slysinu: lögregla, Vinnueftirlit ríkisins, tryggingafélög, sjúkraflutningsaðilar og heilbrigðisstofnanir. Í heilbrigðisþjónustu eru skráðar sjúkdómsgreiningar samkvæmt ICD-10 kóðum og þar er líka hægt að skrá ástæður áverkans sem viðkomandi verður fyrir. Heilbrigðisstofnanir skrá upplýsingar um slys í sjúkraskrá en ekki liggja fyrir miðlæg og landsþekjandi gögn um slys fyrir þetta tímabil. Vinna við endurskoðun slysaskráningar og gerð nýrrar slysaskrár fyrir slys hér á landi hefur staðið yfir undanfarin misseri hjá embætti landlæknis og eru vonir bundnar við að samræmd slysaskráning innan heilbrigðiskerfisins hefjist á ný áður en langt um líður.
    Unnið er að endurskoðun á landsþekjandi slysaskráningu og smíði á nýjum gagnagrunni í samræmi við 8. gr. laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu. Miðað er við að grunnurinn nái eingöngu til gagna úr heilbrigðiskerfinu, þ.e. frá sjúkrahúsum, heilbrigðisstofnunum og heilsugæslustöðvum varðandi áverka og ytri orsakir slysa. Sem fyrr er tilgangur skráningarinnar að fylgjast með slysatíðni, meta árangur slysavarna og nýta gögnin til forvarna, stefnumótunar og vísindarannsókna, en einnig að setja fram samanburðarhæf gögn á alþjóðavettvangi. Tilgangurinn er enn fremur að heilbrigðisstofnanir geti fylgst með eigin slysaskráningu, kortlagt slysatíðni á þjónustusvæði sínu og nýtt gögnin í starfsemi sinni.

     2.      Hver hélt utan um slysaskrá til loka ársins 2019?
    Slysaskrá Íslands var komið á fót árið 2001. Skráin var haldin hjá embætti landlæknis, á grundvelli 8. gr. laga nr. 41/2007. Upphaflegur tilgangur skrárinnar var að fá yfirlit yfir öll slys á Íslandi eftir tegundum, aldri, kyni, staðsetningu o.fl. og nýta þær upplýsingar til forvarnastarfs og stefnumótunar, auk rannsókna á slysum. Skráin innihélt staðlaðar lágmarksupplýsingar um slys, slasaða einstaklinga og eignatjón. Gögn bárust úr skráningarkerfum þeirra stofnana og fyrirtækja sem miðluðu gögnum í slysaskrána en ítarlegri upplýsingar voru jafnan skráðar um hvert slys og kringumstæður þess hjá skráningaraðilum.
    Árið 2019 voru skráningaraðilar Landspítali, Sjúkrahúsið á Akureyri, Heilbrigðisstofnun Austurlands, Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Heilbrigðisstofnun Vesturlands, ríkislögreglustjóri, Vinnueftirlit ríkisins og tryggingafélagið TM. Reglubundin úrvinnsla úr slysaskrá var birt árlega á vef embættis landlæknis. Þar sem gögn úr skránni voru ekki fullþekjandi og skráningaratriði takmörkuð nýttust þau ekki nægilega vel til þeirrar vinnu sem þau voru ætluð í upphafi. Að endingu var skránni lokað árið 2022 vegna tæknilegra vandamála.

     3.      Hve mörg slys voru skráð á árunum 2020–2024 eftir tegundum að aftan? Svar óskast sundurliðað að auki eftir mánuðum, vikudögum og tíma sólarhrings, og eftir kyni og aldri þess sem varð fyrir slysi:
                  a.      Umferðarslys.
                  b.      Sjóslys.
                  c.      Flugslys.
                  d.      Vinnuslys.
                  e.      Heima- og frístundaslys.
                  f.      Íþróttaslys.
                  g.      Skólaslys.
                  h.      Önnur slys.

    Ekki liggja fyrir miðlæg og landsþekjandi gögn um slys fyrir undanfarin ár og því ekki hægt að greina slysatíðni eftir þeim skilmerkjum sem óskað er eftir.