Ferill 165. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 370  —  165. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Isaksen um samfélagslegan kostnað af áfengisneyslu.


     1.      Er ráðherra sammála því að ætla megi að samfélagslegur kostnaður af áfengisneyslu á ári sé 2,6% af vergri landsframleiðslu í hátekjulöndum, líkt og haldið var fram í skýrslu frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni í nóvember árið 2024, og hafi því verið um 112 milljarðar kr. á Íslandi árið 2023?
    Ráðherra hefur ekki kynnt sér tilvitnaða skýrslu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Af hálfu ráðuneytisins hefur ekki verið gerð sérstök kostnaðar- og ábatagreining á ætluðum áhrifum áfengisneyslu á samfélagið, enda er fyrst og fremst um að ræða kostnaðaráhrif sem snúa að stærstum hluta að lýðheilsu og heilbrigðisþjónustu en það er málefni á forræði heilbrigðisráðherra. Ráðherra hefur því ekki viðhlítandi forsendur til að hafa skoðun á tilteknu mati á slíkum hagrænum áhrifum á alþjóðavísu eða samanburði við stöðu mála hér á landi. Til upplýsingar má þó í þessu sambandi benda á skýrslu um þetta málefni sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands vann fyrir landlæknisembættið árið 2018. Ein niðurstaða þeirrar skýrslu, með ýmsum fyrirvörum um forsendur, er að „[ef] verðmæti áfengis í augum neytenda er dregið frá heildarkostnaði fyrir samfélagið fæst hreinn samfélagslegur ábati af áfengisneyslu.“ 1

     2.      Er ráðherra sammála því að gera megi ráð fyrir því að samfélagslegur kostnaður af áfengisneyslu ykist á Íslandi ef Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins verður lögð niður?
    Í ljósi þess sem fram kemur í svari við 1. tölul. fyrirspurnarinnar liggur ekki heldur fyrir sérstakt mat ráðuneytisins á þjóðhagslegum áhrifum á breyttu sölufyrirkomulagi áfengis sem hér er óskað eftir. Í þessu sambandi er ástæða til að benda á að engin áform hafa verið sett fram um að leggja ÁTVR niður af hálfu ráðherra.

     3.      Ef svo er, hve mikil gæti sú aukning samfélagslegs kostnaðar orðið miðað við rannsóknir Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar?
    Vísað er til svara við 1. og 2. tölul. fyrirspurnarinnar.
1     Áhrif áfengis á þjóðarhag, skýrsla nr. C18:06, Hagfræðistofnun Háskóla Íslands 2018, bls. 37.