Ferill 233. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 404  —  233. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Árna Rúnari Þorvaldssyni um uppbyggingu og rekstur hjúkrunarheimila í Hafnarfirði.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Eru viðræður hafnar af hálfu ráðuneytisins við þá aðila sem hyggjast byggja upp og reka til framtíðar ný hjúkrunarheimili í Hafnarfirði, annars vegar í Hamranesi og hins vegar við Hrafnistu?

    FSRE auglýsti markaðskönnun í janúar þar sem óskað var eftir húsnæði fyrir allt að 80 til 120 hjúkrunarrými á höfuðborgarsvæðinu. Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir vinnur nú við að greina tilboð sem bárust og kanna hvort þau uppfylli skilyrði. Engar viðræður eru hafnar við tilboðsaðila af hálfu ráðuneytisins.