Ferill 221. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 407 — 221. mál.
Svar
félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Þorgrími Sigmundssyni um atvinnuleysisbætur.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hversu hátt hlutfall erlendra ríkisborgara sem hafa U2-vottorð vegna atvinnuleitar í EES-landi þáði atvinnuleysisbætur árin 2015–2024 meðan atvinnuleit fór fram erlendis? Hversu hátt hlutfall þeirra þáði atvinnuleysisbætur oftar en einu sinni í samfellu á sama árabili?
Samkvæmt 42. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, er Vinnumálastofnun heimilt að greiða atvinnuleysisbætur til þess sem telst tryggður samkvæmt lögunum og er í atvinnuleit í öðru aðildarríki að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið eða stofnsamningi Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum, enda uppfylli hann tiltekin skilyrði. Í slíkum tilvikum gefur Vinnumálastofnun út svonefnt U2-vottorð til staðfestingar á rétti hins tryggða samkvæmt ákvæðinu. Allir þeir atvinnuleitendur sem fengu slíkt vottorð útgefið á árunum 2015–2024 fengu því greiddar atvinnuleysisbætur meðan atvinnuleit fór fram erlendis.
Samkvæmt 1. mgr. 57. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, skal fyrirspurn frá alþingismanni til ráðherra vera skýr um afmörkuð atriði og mál sem ráðherra ber ábyrgð á og skal við það miðað að hægt sé að svara henni í stuttu máli. Þar sem síðari hluti þeirrar fyrirspurnar sem hér um ræðir, þess efnis hve hátt hlutfall umræddra atvinnuleitenda þáði atvinnuleysisbætur oftar en einu sinni í samfellu á sama árabili, þykir óljós og ekki nægjanlega afmarkaður þykir ekki unnt að svara þeim hluta fyrirspurnarinnar en í því sambandi er sérstaklega bent á orðin „oftar en einu sinni í samfellu“.